Ung vinstri græn
Fréttasafn

Enn um boli

Persónupólitík var mikið til umræðu fyrir síðustu kosningar og sýndist sitt hverjum. Talað var um ?tvo turna? og var þá átt við slag Davíðs Oddssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ingibjörg Sólrún sjálf talaði iðulega um stjórnarhætti Davíðs Oddssonar, ekki Sjálfstæðisflokksins, og Sjálfstæðismenn töluðu iðulega um stjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í Reykjavíkurborg, ekki stjórn Reykjavíkurlistans.

Aðrir flokkar fóru ekki út í persónupólitík af þessu tagi. Nú má spyrja hvort persónupólitík sé slæm eða góð. Á það hlýtur hver og einn að leggja eigið mat. Vill hann tefla fram framvarðasveit eða framverði? Leggja meiri áherslu á málefnin eða hvaða fólki sé treystandi? Allt hlýtur þetta að vera háð persónulegu mati hvers og eins.

Ung vinstri græn ákváðu að færa persónupólitíkina inn á nýjar brautir þegar þau létu prenta boli þar sem Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, var þrykktur á í sama stíl og Che Guevara. Hugmyndin kom frá Erpi Eyvindarsyni þar sem hann sat og borðaði kvöldmat á tælenskum veitingastað í Reykjavík í febrúar síðastliðnum (en eitthvað hefur verið á reiki hver átti hugmyndina og er því hér með komið á hreint).

Þessi bolaprentun var aðferð UVG til að lýsa ákveðnu frati á persónupólitík almennt. Eins og kunnugt er er Che Guevara, sem þekktastur er fyrir sósíalíska byltingu á Kúbu, orðin mikil markaðsvara og kapítalístar um heim allan hafa hagnast á að skella andliti hans á boli og nærbuxur og hvaðeina.

Með því að tefla fram formanni flokksins á þennan hátt töldum við okkur vera að fara með persónupólitík í heilan hring enda væri hlálegt að sjá Steingrím J. Sigfússon, með bindi og Che Guevara-húfu, á bolum um allan bæ. Brandarinn tókst með slíkum endemum að bolirnir ruku út og í raun vitum við ekki enn hvort vinstrimenn skildu brandarann eða hvort þeim fannst þetta bara svona eitursvalt.

Í öllu falli tókst okkur að valda andstæðingum okkar mikilli gremju sem hafa bloggað, skrifað á vefrit og tjáð sig um málið, bólgnir af pirringi, og sakað okkur um að hafa gengið lengst allra í persónupólitík. Svar okkar er einfalt: Við gerðum þetta í gríni, fyrst og fremst til að sýna fram á að okkur fannst persónupólitík komin út yfir öll velsæmismörk. Þess vegna færðum við hana yfir þau mörk á áþreifanlegan hátt og margir voru til í að hlæja að þessu með okkur.

En þetta var stutt söguskoðun á nýafstaðinni kosningabaráttu. Þeir sem vildu kaupa boli fyrir kosningar en fengu ekki geta leitað í Vonarstræti 12 þar sem finna má nokkra boli hjá Kristínu Halldórsdóttur. Verðið er sem fyrr 1000 krónur.

Stjórn UVG

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica