Fréttasafn
Laugardagsfundur UVG með Steingrími J.
Næsta laugardag, 9. febrúar, standa Ung vinstri græn fyrir fundi í húsnæði Vinstri grænna, Suðurgötu 3, klukkan 14. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, kemur og fjallar um nýtilkomna formennsku sína í Jafnréttisnefnd Evrópuráðsþingsins. Steingrímur er fyrsti karlmaðurinn til að gegna formennsku í Jafnréttisnefndinni og sennilega með fyrstu ef ekki fyrsti Íslendingurinn til að fara fyrir einni af tíu nefndum Evrópuráðsins. Allir velkomnir, ungir sem aldnir.
