Stjórnmálaskóli UVG á höfuðborgarsvæðinu 12. apríl
Stjórnmálaskóli Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn klukkan 11:00 laugardaginn 12.apríl í húsakynnum Vinstri grænna í Hamraborg 1-3 í Kópavogi.
Góðar strætósamgöngur eru upp í Hamraborg, þangað ganga leiðir 1, 2, 4, 28, 35 og 36. Við bendum á ráðgjafann og heimasíðu Strætó fyrrir frekari upplýsingar um strætóferðir.
Í „skólanum“ verður boðið upp á fræðslu og umræðu fyrir ungt fólk um róttæk stjórnmál, umhverfisvernd og femínisma. Skólinn er opinn öllum hefst klukkan ellefu árdegis og lýkur upp úr þrjú síðdegis.
Dagskrá
Saga og stofnun VG:
Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, flytur erindi og leiðir umræður í kjölfarið.
-Hádegishlé:
Hádegisverður í boði UVG fyrir svanga „nemendur“.
-Stefna VG og UVG:
Katrín Jakobsdóttir varaformaður VG og Elías Jón Guðjónsson varaformaður UVG kynna stefnu VG og UVG og leiða í kjölfarið umræður.
-Fundir og mótmæli:
Kristján Ketill Stefánsson og Þórhildur Halla Jónsdóttir fjalla um allt frá fundarsköpum til mótmæla.
-Ungt fólk í stjórnmálum:
Brynja Björg Halldórsdóttir, formaður Ungra vinstri grænna í Reykjavík, segir frá sinni aðkomu og ungs fólks almennt að stjórnmálum.
Um kvöldið verður róttæk, friðsöm, umhverfisvæn og femínisk skemmtun klukkan 20:30 í Friðarhúsinu á horni Njálsgötu og Snorrabrautar(Skammt frá Hlemmi þannig að auðvelt er að komast þangað með strætó).

