Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ung vinstri græn á Austurlandi: Stjórnmálaskóli og aðalfundur

Laugardaginn 26. janúar halda Ung vinstri græn stjórnmálaskóla á Egilsstöðum. Allir ungir og róttækir eru hvattir til að nýta tækifærið og fræðast um starfssemi Ungra vinstri grænna og stjórnmál yfirleitt. Skólinn verður haldinn í húsnæði Menntaskólans á Egilsstöðum og stendur frá kl. 13:00 til 15:00.

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á Austurlandi verður haldinn á sama stað kl. 15:30. Allir eru velkomnir!

Um kvöldið blása svo Ung vinstri græn til skemmtunar og vonast til að skemmta sér með sem flestum þar fram eftir kveldi. Staðsetning og skemmtiatriði nánar auglýst síðar.


Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica