Ung vinstri græn
Fréttasafn

Alþjóðleg mótmæli

Samtök hernaðarandstæðinga standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi á morgun, laugardag 15. ágúst, kl. 13:00. Tilefnið er að fimm ár eru liðin frá því að Bandaríkin réðust inní Írak en þar geysar enn stríð sem kostar hundruði óbreyttra borgara lífið í hverri einustu viku. Krafa fundarins er “Stríðinu verður að linna” og samskonar fundir eru haldnir af fjöldamörgum friðarsamtökum útum allan heim á sama tíma.

Ung Vinstri græn hafa látið útbúa lítinn bækling með punktum um "varnarmál" og nýjasta útspil utanríkisráðherra, varnarmálafrumvarpið svokallaða. Þessum bæklingi ætla Ung Vinstri græn að dreifa í fyrsta skipti á útifundinum á morgun.

Ung Vinstri græn hvetja alla félaga sína til að sýna samstöðu í baráttunni fyrir friði og mæta á útifundinn á morgun.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica