Ung vinstri græn
Fréttasafn

Einn ráðherra þáði gjöf UVG

Kristján MöllerÍ ljósi mikilla vinsælda þess að gefa ráðherrum gjafir fyrir þessi áramót buðu Ung vinstri græn ráðherrum að mæta á skrifstofu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að Suðurgötu 3 milli 12-13 í dag, gamlársdag, og taka á móti gjöf frá ungliðahreyfingunni. Einn ráðherra kom og tók við gjöfinni, Kristján Möller samgöngumálaráðherra, sem sagðist ekki hafa dottið annað í hug en að kíkja við og þiggja gjöfina.

Ung vinstri-græn vona að ráðherrar vorir, sem og aðrir landsmenn, hafi notið áramótanna með fjölskyldum sínum, drukkið hóflega af víni en umfram allt tendrað ljós og hugsað fallega til björgunarsveitanna sem byggja afkomu sína á sölu flugelda.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica