Fréttasafn
Hvað er málið með miðbæinn?
Hvað er málið með miðbæinn ?
-Hver er þessi „miðbæjarvandi“?
-Er hann einhverjum að kenna?
-Hverjar eru lausnirnar?
Einmitt þetta verður til umræðu á fundi Ungra vinstri-grænna í Reykjavík á laugardaginn, 3. nóvember.
Hvað finnst þér um lokunartíma skemmtistaða, vinnubrögð lögreglu, ábyrgð kráareigenda og umgengni í bænum? Mættu kl. 11.00 á Suðurgötu 3 og taktu þátt; segðu þína skoðun hlustaðu á aðra og fræðstu. Valli, eigandi B5 og meðlimur í Félagi kráareigenda og Fríða Björk Ingvarsdóttir, blaðakona og íbúi í miðbænum mæta í spjall og svara svo spurningum. Opið verður fyrir umræður.
Heitt á könnunni, allir velkomnir!
