Landsfundur og ný stjórn Ungra vinstri-grænna
Landsfundur Ungra vinstri-grænna var haldinn í Reykjavík dagana 6.-7. október 2007. Fundurinn tókst í alla staði vel og var mæting ungliða með ágætum. Dagskrá landsfundar hófst með friðarstund við Laugardalshöll, þar sem NATO-þingið fer fram. Ung vinstri-græn mótmæltu þar því að fundur þessa hernaðarbandalags skuli vera hýstur hér á landi og á kostnað Íslendinga, og bentu á að réttara væri að nota fjármuni þá sem eytt var í fundinn, til að styðja við íbúa á svæðum sem illa hafa orðið úti í árásum NATO. UVG ítrekaði ennfremur kröfu sína um að Ísland segi sig úr NATO og myndi sér friðsama og sjálfstæða utanríkisstefnu.
Í upphafi landsfundar flutti formaður UVG, Auður Lilja Erlingsdóttir ávarp sitt og síðan fluttu fulltrúar frá grasrótarsamtökunum Vantrú og Samtökum hernaðarandstæðinga skemmtileg og fræðandi erindi auk þess sem þeir svöruðu fyrirspurnum úr sal. Einnig fluttu tölur tveir erlendir gestir landsfundar, þeir Tomas Korkalainen sem situr í alþjóðanefnd Vasemmistonaoret í Finnlandi, og Mikkel Stage sem situr í alþjóðanefnd Social Folkepartiet Ungdom í Danmörku. UVG hefur á síðastliðnum vetri tekið aukinn þátt í alþjóðasamskiptum við meðal annars þessar ungliðahreyfingar og er það mjög ánægjulegt að fá að taka á móti þessum og fleiri erlendum gestum frá systurhreyfingum okkar á Norðurlöndunum.
Á landsfundinum voru haldnar kynjaskiptar smiðjur sem þóttu heppnast afar vel. Stelpurnar sóttu feminískt sjálfstyrkingar- og sjálfsvarnarnámskeið hjá Jenny Grannas, sænskum feminista og leiðbeinanda í sjálfsvarnaríþróttum. Fulltrúi frá karlahópi feministafélags Íslands hitti strákana á meðan og ræddi við þá um kvenréttindi og kynfrelsi.
Landsfundurinn samþykkti nýja stefnuyfirlýsingu hreyfingarinnar auk átta ályktana og eru þau skjöl væntanleg á heimasíðuna í náinni framtíð.
Kosin var ný stjórn á landsfundi og var Auður Lilja Erlingsdóttir endurkjörin formaður, en Auður Lilja hefur gegnt embættinu í eitt ár og er ennfremur fyrsti varamaður Vinstri grænna í Reykjarvíkurkjördæmi suður. Nýkjörna stjórn Ungra vinstri grænna skipa eftirtalin:
Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður
Elías Jón Guðjónsson, varaformaður
Steinunn Rögnvaldsdóttir, ritari
Erlendur Jónsson, gjaldkeri
Andrés Rúnar Ingason, meðstjórnandi
Finnur Dellsen, meðstjórnandi
Kristján Ketill Stefánsson, meðstjórnandi
Þórhildur Halla Jónsdóttir, meðstjórnandi
Þórunn Ólafsdóttir, meðstjórnandi
Í varastjórn sitja:
Daníel Haukur Arnarsson
Katrín Lilja Jónsdóttir
Kári Páll Óskarsson
Nýkjörin stjórn þakkar fyrir frábæran landsfund og hlakkar til að leiða öflugt og skemmtilegt starf á komandi vetri!
Ung vinstri græn
