Ung vinstri græn
Fréttasafn

Friðsöm mótmæli vegna ársfundar NATO-þingsins

Áður en landsfundurinn verður settur, á laugardagsmorguninn klukkan 8:00, munu Ung vinstri-græn halda friðsæla og táknræna mótmælaathöfn við Laugadalshöllina þar sem ársfundur NATO-þingsins verður haldin dagana 5.-9. októtber. Kveikt verður á 58 kertum, sem tákna eiga þau ár sem Ísland hefur verið aðili að NATO. Með þessu vill hreyfingin minnast óteljandi fórnarlamba hernaðaraðgerða NATO og minna þannig þingfulltrúa á alvarleika hernaðar og hvetja íslensk stjórnvöld til að segja sig tafarlaust úr slíkum stríðsmangarasamtökum sem NATO eru. Það að ársfundur NATO-þingsins sé haldinn hér á landi á ekkert skylt við þær mikilvægu friðarumleitanir í heiminum þar sem Ísland gæti verið í farabroddi. Það væri íslenskum stjórnvöldum til meiri sóma að nýta þær fjárhæðir sem lagðar eru í uppihald 340 NATO-þingmanna til þess að taka á móti 340 flóttamönnum frá stríðshrjáðum löndum eða í aðstoð við fólk í stríðshrjáðum löndum.

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica