Ung vinstri græn
Fréttasafn

Nokkur atriði varðandi landsfund

Hér eru svo nokkur praktísk atriði varðandi landsfundinn um helgina.

-Landsfundurinn verður settur klukkan 9:00.

-Hann fer fram á Vesturgötu 7 í Reykjavík, á horni Vesturgötu og Garðastrætis. Þar er frá degi til dags rekin félags- og þjónustumiðstöð fyrir aldraða.

-Skráning fer fram á uvg@vinstri.is eða á staðnum eftir að fundur hefst. Það er hægt að skrá sig til klukkan 17:00 á laugardaginn.

-Framboðum til stjórnar skal skilað á uvg@vinstri.is eða til fundarstjóra á meðan fundur stendur yfir. Framboðsfrestur rennur út klukkan 14:00 á sunnudaginn, þegar dagskrárliðurinn ?Kosning stjórnar? verður tekinn fyrir.

-Landsfundargjald er 2500 krónur. Innifalið í því er hádegisverður á laugadag og sunnudag og kvöldskemmtun á laugardagskvöld. Landsfundargjaldið fer í að greiða þann kostnað sem hlýst af fundarhöldum, s.s. salarleigu, fundargögn, fundarboð o.s.frv.

-Þeir sem þurfa að leggja út í ferðakostnað til þess að sækja landsfundinn þurf ekki að greiða landsfundargjald.

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica