Ný stjórn UVG-R og ályktanir aðalfundar
Síðastliðinn laugardag fór fram aðalfundur Ungra vinstri-grænna í Reykjavík. Á fundinum var Brynja Björg Halldórsdóttir kjörinn formaður. Auk hennar voru Ástríður Pétursdóttir, Claudia Overesch, Sigurður Kári Árnason og Ísleifur Egill Hjaltason kjörinn í aðalstjórn en Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir og Sigrún Vala Þorgrímsdóttir voru kjörnar í varstjórn.
Aðfundurinn samþykkti eftirfarandi ályktanir:
Nektarstaðir
Aðalfundur UVGR, haldinn að Suðurgötu 3, þann 29. september lýsir yfir ánægju vegna aðgerða lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins sem ráðist var í gegn nektarstöðum í Reykjavík. Mikilvægt er að borgarstjóri og borgaryfirvöld taki skýra afstöðu gegn þeirri smán sem nektarstaðir eru. Fundurinn harmar þá staðreynd að ennþá séu slíkir staðir starfræktir og skorar á lögreglustjóra að neita þeim stöðum sem nú hafa sótt um undanþágu til nektarsýninga skilyrðislaust.
Nektarstaðir eru konum og körlum til minnkunar. Fundurinn lýsir yfir vanþóknun sinni á þeirri hlutgervingu og niðurlægingu sem þar á sér stað.
Hjólreiðar
Aðalfundur UVGR, haldinn að Suðurgötu 3, þann 29. september fagnar ákvörðun borgarstjórnar um að vinna hjólreiðaáætlun sem miðar að því að gera hjólreiðar að viðurkenndum samgöngumáta í Reykjavík. Breyta þarf hugsunarhætti fólks, að líta á einkabílinn sem eina viðurkennda samgöngumátann innan borgarinnar. Hingað til hefur frekar verið litið á hjólreiðar í Reykjavík sem útivistarmöguleika en ekki raunhæfan kost til að ferðast á milli staða. Fundurinn skorar jafnframt á borgaryfirvöld að áætlunin verði unnin sem fyrst til þess að hægt sé að fjölga hjólreiðarstígum sem miða að því að auðvelda og efla hjólreiðar sem viðurkenndan samgöngumáta í borginni.
Launamál borgarinnar
Aðalfundur UVGR, haldinn að Suðurgötu 3, þann 29. september fagnar frumkvæði fulltrúa VG í leikskólaráði borgarinnar um nýtingu heimilda til tímabundinna álagsgreiðslna vegna manneklu á leikskólum borgarinnar. Fundurinn krefst þess jafnframt að þessar greiðslur verði viðvarandi meðan við manneklu er að etja.
Fundurinn leggur einnig áherslu á að í komandi kjarasamningum verði umönnunarstéttunum sem og öðrum lágalaunastéttum, tryggðar umtalsverðar kjarabætur. Verði það ekki gert með mannsæmandi hætti mun mannekla á leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum borgarinnar verða til frambúðar.
Miðbærinn
Aðalfundur UVGR, haldinn að Suðurgötu 3 þann 29. september, fagnar því að lögregluyfirvöld leggja nú aukna áherslu á öryggi í miðborg Reykjavíkur. Þær sértæku aðgerðir sem felast í auknum sýnileika lögreglunnar og harðari viðurlögum við sóðaskap og óspektum eru merki um vitundarvakningu sem er löngu þörf. Þó varar fundurinn mjög við því að lögreglan fari offari í aðgerðum sínum og minnir á að gæta skal hófs í allri framgöngu gangvart borgurunum.
Til að stuðla að varanlegri lausn á vandanum er nauðsynlegt að samhliða aðgerðum af þessu tagi verði forvarnir meðal barna og ungmenna efldar, bæði hvað varðar áfengi og vímuefni, en einnig hvað varðar virðingu bæði gagnvart sjálfum sér og öðrum einstaklingum. Þó hér sé áhersla lögð á forvarnir meðal yngri kynslóðarinnar ber að halda því til haga að fólk á öllum aldri er til vandræða í miðbænum og harmar aðalfundur UVGR þá staðreynd að ástandið bitni einkum á ímynd ungs fólks þar sem að langfæstir í þeirra hópi eru til vandræða.
Afgreiðslutími skemmtistaða
Aðalfundur UVGR, haldinn að Suðurgötu 3, þann 29. september telur þær hugmyndir lögreglustjóra um að flytja skemmtistaði úr miðbænum og loka öllum stöðum í miðbænum kl. 2 ekki vera lausn á þeim vanda sem hefur verið til staðar í miðbæ Reykjavíkur.
Aðalfundur UVGR hvetur til samráðs við íbúa þegar leita á nýrra leiða í afgreiðslutímumtímum skemmtistaða. Það þarf að líta heildstætt á vandann í samráði við veitingarmenn og íbúa miðbæjarins sem og aðra borgarbúa til að sem farsælust lausn náist.
Ung vinstri græn
