Ung vinstri græn
Fréttasafn

Finnur Dellsén í gapastokknum

Í dag situr Finnur Dellsén forvalsframbjóðandi og múrari fastur í gapastokknum.

Nafn: Finnur Dellsén

Fæðingardagur/ár/staður: 8. október 1984 í Gautaborg, Svíþjóð.

1. Rétthentur eða örvhentur?
Rétthentur.

2. Samgöngumáti?
Gangandi, og með strætó þegar þess gerist þörf.

3. Kaffi eða te?
Ekki kaffi en stundum te. Ég set ekki mjólk eða sykur út í það, þannig að ég býst við að teið sé þá svart....

Eftirlætis...

4. ...sjónvarpsefni?
The Office.

5. ...kvikmynd?
The Royal Tenenbaums.

6. ...hljómplata?
Highway 61 Revisited með Bob Dylan.

7. ...eftirmatur?
Ég veit ekki... ís?.

8. ...bók?
Úr því að fólk svindlar og nefnir bæði skáldsögu og fræðibók ætla ég að gera það líka: The Structure of Scientific Revolutions eftir Thomas Kuhn (fræðibók) og Fahrenheit 451 eftir Ray Bradbury (skáldsaga).

9. ...kaffihús?
Þegar ég var lítill bjó ég nálægt litlu kaffihúsi sem seldi snúða á stærð við litlar pítsur fyrir slikk. Ég man ekki lengur hvað kaffihúsið heitir, en það er í miklu uppáhaldi..

10. ...bjórtegund?
Kóreyski hrísgrjónabjórinn Hite.

11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
0 kr.

12. Steingrímur eða Che?
Steingrímur hefur engin líf á samviskunni, svo að hann sigrar með yfirburðum.

13. Pílukast eða körling?
Ég og vinur minn ætluðum einu sinni að stofna kurlfélag Akureyrar þegar við vorum 14 ára. Svo komumst við að því að félagið var þegar til. Ég hef ekki haft áhuga á kurli (körling) síðan. Pílukastið er því skárra þótt ég forðist almennt að kasta beittum hlutum.

14. Kýr eða belja?
Er það ekki það sama?.

15. Vefrúnturinn byrjar á...?
Múrnum/.

16. Síðasta ferðalag innanlands?
Í lok sumarsins fór ég austur á Ásbyrgi til að sjá Sigur Rós. (Ég mæli með hjáleiðinni niður að Mývatni og upp framhjá Dettifossi, sérstaklega ef Takk er botnaður í bílnum á meðan).

17. ...en erlendis?
Ég kom heim frá Berlín fyrir rúmri viku síðan.

18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Hækka framlög til þróunarsamvinnu upp í 0,7% í samræmi við kröfur Sameinuðu þjóðanna til vestrænna ríkja.

19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Ég geri nú ekki beinlínis kröfu um ráðherraembætti, en utanríkisráðuneytið myndi sennilega henta mér best.

20. Hver er besta ástæðan fyrir því að hata Framsóknarflokkinn?
Björn Ingi sagði það best í viðtali um daginn; að það ?gerist alltaf eftir kosningar, að Framsóknarflokkurinn verður í lykilaðstöðu.? En ég hata auðvitað ekki Framsóknarmenn ? ég vorkenni þeim frekar fyrir að þurfa að verja og framkvæma hægripólitík Sjálfstæðisflokksins.

21. Spurning til næsta viðmælenda?
Hvað finnst þér um að beita borgaralegri óhlýðni þegar valdhafar sniðganga vilja almennings?

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica