Auður Lilja í gapastokknum
Í dag er Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður UVG, í gapastokknum.
Nafn: Auður Lilja Erlingsdóttir
Fæðingardagur/ár/staður: 23. ágúst 1979, í Uppsölum.
1. Rétthent eða örvhent?
Rétthent.
2. Samgöngumáti?
Gangandi, akandi eða í strætó.
3. Kaffi eða te?
Kaffi Latte!
Eftirlætis...
4. ...sjónvarpsefni?
Fréttir og Gilmore Girls.
5. ...kvikmynd?
Sænskar og danskar myndir eru í miklu eftirlæti hjá mér t.d. eru flestar myndirnar frá Lukas Moodysson snilld.
6. ...hljómplata?
Drög að heimkomu með Orra Harðar.
7. ...eftirmatur?
Tiramisú.
8. ...bók?
Det finns en särskild plats i helvetet för kvinnor som inte hjälper varandra.
9. ...kaffihús?
Kaffi Roma, Rauðarárstíg.
10. ...bjórtegund?
San Miguel.
11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
Um 15.000 krónum eða sem samsvarar að kaupa lénið www.audurlilja.is og kaupa hýsingu.
12. Steingrímur eða Che?
Steingrímur.
13. Pílukast eða körling?
Pílukast.
14. Kýr eða belja?
Kýr, maðurinn minn er sveitastrákur sem myndi íhuga að skilja við mig ef ég segði belja.
15. Vefrúnturinn byrjar á...?
www.vinstri.is.
16. Síðasta ferðalag innanlands?
Ég fór á mjög skemmtilegan landsfund UVG í Hveragerði.
17. ...en erlendis?
Ég er nýkomin af þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.
18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Færa atvinnuleyfi útlendinga úr höndum vinnuveitanda til þeirra sjálfra.
19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Forsætisráðuneytið.
20. 22.Hefur þú upplifað kartesískan klofning?
Mjög svo.....
21. Spurning til næsta viðmælenda?
Rautt eða grænt?
Ung vinstri græn
