Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ung vinstri græn lýsa yfir stuðningi sínum við málshöfðun á hendur fyrrverandi forsætisráðherra. Meðferð málsins fyrir Landsdómi er nauðsynlegur liður í uppgjöri við hrunið og aðdraganda þess.
Ellefta reglulega landsfundi Ungra vinstri grænna sem haldinn var á Suðureyri lauk í dag. Fjölmargar ályktanir voru samþykktar á fundinum, meðal annars um trúfrelsi, hernaðarbrölt og forseta Íslands.
Lesa meira
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu ætla að halda temmilega skemmtilegt nýliðakvöld sem undanfara að Landsfundi UVG sem fram fer eftir 10 daga. Nýliðakvöldin eru haldin reglulega á hverjum vetri og hafa gefist vel.
PubQuiz, kringlur og kókómjólk á Suðurgötu 3 fimmtudagskvöldið 20. september klukkan 20.
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu samgleðst Ungum sjálfstæðismönnum í því að þeir hafi loksins séð ljósið og áttað sig á hluta af fáránleika bandarískrar stjórnsýslu. Tillaga þeirra um að beita Bandaríkin refsiaðgerðum er til fyrirmyndar, þó að forsendurnar séu aðeins toppur þess ísjaka ódæðisverka og mannréttindabrota sem eiga sér daglega stað í sjálfskipuðu fyrirmyndarríki frelsis og lýðræðis.
Lesa meira
Stjórnir Ungra vinstri grænna, Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarbyggð og á Akureyri skora á ríkisstjórn Íslands og utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, að fordæma opinberlega loftárásir NATO-sveita í Líbíu. Ung vinstri græn vilja enn og aftur ítreka að Ísland er herlaust land sem á að sjá sóma sinn í því að styðja ekki við bandalög og árásarþjóðir sem fara í stríð.
Lesa meira
Það eru mikil vonbrigði að enn hafi ekki orðið vart við gagngerar stefnubreytingar á sviði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, þrátt fyrir að nú hafi verið vinstristjórn í landinu í rúm tvö ár. Ung vinstri græn minna Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra, á orð sín þegar forveri hans í embætti hugðist koma slíkum heimildum á og skora jafnframt á hann að endurskoða hug sinn nú.
Lesa meira
Þriðjudaginn 1. mars næstkomandi boða Ung vinstri græn og Ungir jafnaðarmenn til opins fundar um IceSave samninginn. Fundurinn er hugsaður sem kynningarfundur á skilmálum samningsins sem og hverjar afleiðingarnar verða ef hann yrði ekki samþykktur. Framsögufólk fundarins verða Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Oddný G. Harðardóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna fordæmir flutninga íslenska flugfélagsins Atlanta á stríðsgögnum til Afganistan. Flutningur stríðsgagna og vopna getur ekki talist annað en þátttaka í stríði og ætti fyrirtækið að sjá sóma sinn í því að hagnast ekki á dauða fólks í hinum stríðshrjáða heimi. Stjórnin beinir því jafnframt til innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, að taka í taumana sem allra fyrst. Það er óforsvaranlegt að íslensk fyrirtæki fái heimild til þátttöku í stríði í stjórnartíð Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna harmar dóm héraðsdóms Reykjavíkur yfir hinum svokölluðu níumenningum sem féll í morgun. Stjórn UVG skorar á forseta Alþingis og skrifstofustjóra Alþingis að segja af sér þegar í stað. Ekki einungis áttu þau frumkvæði að þessum pólitísku réttarhöldum heldur gengu þau svo langt að fara fram á að níumenningarnir yrðu ákærðir og dæmdir til að lágmarki eins árs fangelsisvistar fyrir að hafa rofið friðhelgi Alþingis.
Íslandsdeild Amnesty International efnir til samtöðufundar á Lækjartorgi laugardaginn
12. febrúar og hefst fundurinn kl. 14.00. Samstöðufundurinn er skipulagður af Amnesty International og studdur af Blaðamannafélagi Íslands, Félagi múslima á Íslandi, Kvenréttindafélagi Íslands, Menningar- og friðarsamtökunum MFÍK, PEN á Íslandi, Rauðum vettvangi, Rithöfundasambandi Íslands, ReykjavíkurAkademíunni, Sambandi ungra framsóknarmanna, Sambandi ungra sjálfstæðismanna og Ungum vinstri grænum.
Fundurinn verður haldinn á Suðurgötu 3 miðvikudaginn 9. febrúar næstkomandi klukkan 20:00. Framsögumenn fundarins verða fulltrúar nemenda, tónlistarskólanna og borgarstjórnar:
Lesa meira
Stjórnmálaskóli Ungra vinstri grænna verður haldinn dagana 28.-29. janúar og er öllum velunnurum, vinum og vandamönnum Ungra vinstri grænna boðið til herlegheitanna.
Dagskráin er þéttskipuð og spennandi en þetta er í fyrsta sinn í 4 ár sem Ung vinstri græn efna til stjórnmálaskóla og því um sjaldgæft tækifæri að ræða til að rifja upp Marxisma, velta klámvæðingu fyrir sér, skoða kreppuna í samfélagslegu ljósi og dusta rykið af hugmyndafræði jafnaðarmennskunnar.
Ung vinstri græn boða til opins fundar um náttúruverndarmál. Fundurinn verður haldinn að Suðurgötu 3 kl. 20, þriðjudaginn 18. janúar. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, og Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands flytja erindi.
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu og Vinstri græn í Reykjavík halda opinn fund um sparnað hjá Strætó bs. laugardaginn 15. janúar í húsnæði VG við Suðurgötu 3. Fundurinn hefst klukkan 11:15 og stendur til 13:00. Öll eru velkomin til að kynna sér þann sparnað sem nú fer í hönd hjá fyrirtækinu.
Stjórnmálaskóli Ungra vinstri grænna verður haldinn í lok janúarmánaðar og verður hinn glæsilegasti. Hinir ýmsu vinklar verða kynntir bæði með fyrirlestrum sem og lifandi smiðjum og eru öll velkomin. Það eru orðin nokkur ár síðan Ung vinstri græn héldu síðasta stjórnmálaskóla og því er kjörið tækifæri að strjúka rykið af hugmyndafræði vinstrisins og leggja enn ríkari áherslu á friðarmál, feminisma og það að við setjum pólitíska atburði síðastliðinna ára í sögulegt samhengi.
Lesa meira
Þann 18. nóvember næstkomandi verða Ung vinstri græn 10 ára. Á tímamótum sem þessum er þess virði að líta yfir farinn veg og sjá hve mikil elja og kraftur hefur verið í hreyfingunni allt frá stofnun. Á afmælisárinu sem nú fer í hönd munu Ung vinstri græn því vera dugleg við að birta gamalt útgefið efni, greinar, myndir og annað sem drifið hefur starfið áfram á síðastliðnum áratug. Jafnframt mun hreyfingin fagna þeim áföngum sem náðst hafa en halda áfram að berjast fyrir því sem alltaf hefur verið ofarlega á baugi.
Lesa meira
Vegna þeirrar áhugaverðu umræðu sem undanfarið hefur komið fram um gagnsleysi listamanna sem starfsstéttar hafa Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að efna til fundar um listamannalaun og stuðning ríkisins við menningu næstkomandi miðvikudag, þann 17. nóvember klukkan 20:00 að Suðurgötu 3 í Reykjavík. Framsögufólk á fundinum verða Laufey Guðjónsdóttur formaður kvikmyndastöðvarinnar, Davíð Stefánsson ljóðskáld, Kolbrún Halldórsdóttir forseti BÍL og Björn Valur Gíslason alþingismaður.
Lesa meiraAðalfundur Ungra vinstri grænna á Akureyri var haldinn þann 28. október. Á fundinum var ný stjórn kosin en hana skipa: Sindri Geir Óskarsson, formaður Heiðar S. Heiðarsson, varaformaður Jana Salóme Jósepsdóttir, gjaldkeri Tinna Ingólfsdóttir, ritari Elín Birna Olsen Vigfúsdóttir, meðstjórnandi Á komandi starfsári mun ný stjórn UVG-A leggja ríkari áherslu á bæjarmálin en áður hefur verið gert og hyggst hefja árið með að spyrja þeirrar nauðsynlegu spurningar "Afhverju er bæjarstjóri Akureyrar með ofurlaun á meðan skorið er niður?"
Lesa meira
Fyrsti opni fundur UVG í Borgarbyggð verður haldinn í Skemmunni, Hvanneyri sunnudaginn 31. október kl 20:00. Farið verður yfir starfið framundan og eru nýjir félagar sérstaklega boðnir velkomnir.
Formaður Ungra vinstri grænna mætir á fundinn og kynnir starf hreyfingarinnar í grófum dráttum.
Ung vinstri græn á Akureyri boða til aðalfundar fimmtudaginn 28. október, kl. 20:00 að Brekkugötu 7a á Akureyri. Óskað er eftir framboðum í stjórn og tillögum að lagabreytingum og skulu þær sendar á netfangið sindrigeir@gmail.com.
Lesa meira
Ung vinstri græn halda fyrsta opna fund nýrrar stjórnar miðvikudagskvöldið 20. október að Suðurgötu 3 í Reykjavík. Fundurinn er haldinn í tilefni útkomu Kynungabókar sem Menntamálaráðuneytið gaf út til að efla jafnréttiskennslu í skólum landsins. Til að jafnrétti náist er nauðsynlegt að fræða ungt fólk um stöðu kvenna og karla í samfélaginu og efla þau til gagnrýninnar hugsunar á þær staðalmyndir sem þau búa við.
Lesa meira
Landsfundi UVG lauk nú í kvöld. Guðrún Axfjörð Elínardóttir var kjörin formaður UVG og tók við embættinu af Jan Eric Jessen. Nýkjörin stjórn UVG er eftirfarandi:
Guðrún Axfjörð Elínardóttir - formaður
Snærós Sindradóttir - varaformaður
Björn Reynir Halldórsson - ritari
Þórir Ingvarsson - gjaldkeri
Meðstjórnendur: Ágúst Ísfeld Sæmundsson, Daníel Haukur Arnarsson, Karólína Einarsdóttir, Tinna Ingólfsdóttir og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir.
Varamenn: Bjarki Þórðarson, Björk Emilsdóttir og Helgi Hrafn Ólafsson.
Landsfundur Ungra vinstri grænna hefst klukkan 17:00 í dag, að Vesturgötu 7 í Reykjavík. Á dagskrá fundarins í dag er ávarp formanns UVG, Skýrsla stjórnar starfsársins 2009-2010 auk þess sem ársreiknar verða teknir fyrir. Eftir kvöldverðarhlé verða svo kynntar lagabreytingatillögur, fyrirliggjandi ályktanir og tillögur að breytingum á stefnuyfirlýsingu. Þá fara almennar stjórnmálaumræður fram klukkan 20:00 í kvöld.
Lesa meira
Pallborðsumræður sem fram fara á landsfundi UVG um helgina munu snúast um velferðarmál. Áhrif niðurskurðar á velferðarkerfið verða sérstaklega rædd og eins þeirri spurningu varpað til framsögumanna hvar eigi að finna peninga til þess að hlífa betur velferðarkerfinu í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2011. Í pallborði verða Guðmundur Magnússon formaður ÖBÍ, Kristín Á Guðmundsdóttir sem á sæti í stjórn og framkvæmdastjórn BSRB og er jafnframt formaður sjúkraliðafélags Íslands og Lilja Mósesdóttir alþingiskona.
Lesa meiraSíðastliðinn miðvikudag var félag Ungra vinstri grænna í Borgarbyggð stofnað á stofnfundi í Gömlu skemmunni á Hvanneyri. Góð mæting var á fundinn og augljóslega mikill áhugi ungs fólks í Borgarbyggð á því að starfa með félaginu. Ásmundur Einar Daðason þingmaður, Jan Eric Jessen formaður UVG og Ragnar Frank oddviti VG í Borgarbyggð héldu erindi á fundinum auk þess sem lög félags UVGB voru samþykkt og félaginu kosin stjórn.
Stjórn UVG í Borgarbyggð skipa:
- Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir formaður (næstlengst til vinstri á mynd)
- Anna Ragnarsdóttir Pedersen gjaldkeri (næstlengst til hægri á mynd)
- Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson ritari (lengst til hægri á mynd)
- Kári Gautason varamaður (lengst til vinstri á mynd)
Eins og áður hefur verið auglýst fer landsfundur Ungra vinstri grænna fram í Reykjavík 15. og 16. október næstkomandi. Að því tilefni ætla Ung vinstri græn að standa fyrir sérstökum undirbúningsfundi næstkomandi miðvikudagskvöld, 13. október. Undirbúningsfundurinn verður í húsnæði VG að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hefst klukkan 20:00. Á fundinum verða fyrirliggjandi ályktanir, lagabreytingatillögur og tillögur að breytingum á stefnuyfirlýsingu kynntar - auk þess sem farið verður yfir lög um fundarsköp. Að því loknu verður slegið á léttari strengi með pubquiz og léttum veitingum. Þessi viðburður er sérlega gagnlegur þeim sem ætla að mæta á landsfundinn og eru allir hjartanlega velkomnir.
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu (UVGh) boða til fundar um þjónustu við innflytjendur í Reykjavík þriðjudaginn 5. október nk. Verið er að endurskoða þjónustuna og vinna við stefnumótun í málaflokknum sem lýkur um áramót. Leitast verður við að svara því hvort tækifæri sé til að bæta þjónustu við innflytjendur á þessum tímamótum þrátt fyrir kreppu. Fundurinn verður á Suðurgötu 3 og hefst klukkan 20:00. Frummælendur eru Sigtryggur Jónsson framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar miðborgar og hlíða, Sabine Leskopf frá W.O.M.E.N. samtökum kvenna af erlendum uppruna og Salamann Tamimi talsmaður félags múslíma á Íslandi. Fundarstýra verður Elín Sigurðardóttir, fulltrúi VG í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar.
Lesa meira
Landsfundur Ungra vinstri grænna verður haldinn 15. og 16. október næstkomandi að Vesturgötu 7 í Reykjavík. Allir félagar í UVG hafa atkvæðisrétt á fundinum en hægt er að skrá sig á staðnum. Landsfundur er æðsta ákvörðunarvald hreyfingarinnar, kýs henni stjórn fyrir næsta starfsár, gefur út ályktanir, tekur ákvarðanir um lagabreytingar og breytingar á stefnuyfirlýsingu. Hægt er að senda inn framboð í stjórn UVG, tillögur að ályktunum, lagabreytingum og breytingum á stefnuyfirlýsingu og fyrirspurnir um landsfundinn á netfangið landsfundur@vinstri.is. Einnig er hægt að hafa samband við Jan Eric Jessen, formann UVG, í síma 615 4433.
Lesa meira
Nýtt svæðisfélag UVG í Borgarbyggð verður stofnað í Skemmunni á Hvanneyri miðvikudaginn 6. október næstkomandi. Stofnfundurinn hefst klukkan 20:00. Sérstakir gestir verða Ásmundur Einar Daðason þingmaður, Jan Eric Jessen formaður UVG og Ragnar Frank oddviti VG í Borgarbyggð. Á fundinum verða lög félagsins samþykkt og kosið í stjórn UVG í Borgarbyggð. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta. Að sjálfsögðu verður boðið uppá kaffi og meðlæti.
Lesa meira
Ung vinstri græn boða til fundar, þriðjudagskvöldið 21. september nk., þar sem farið verður yfir mál er varða aðskilnað ríkis og kirkju. Frummælendur verða Bjarni Jónsson, varaformaður Siðmenntar, Hjalti Hugason, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðadeild HÍ og sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 og hefst stundvíslega klukkan 20:00.Heitt verður á könnunni og allir hjartanlega velkomnir.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á ríkisstjórn Íslands að slíta nú þegar öllum samningaviðræðum við hollenska hernaðarfyrirtækið ECA um að það fái leyfi til að halda uppi starfsemi á Íslandi. Mögulegur fjárhagslegur ávinningur auk starfa sem kunna að skapast réttlæta ekki á nokkurn hátt að starfsemi fyrirtækis sem þjálfar fólk í að drepa eða limlesta annað fólk sé heimiluð á Íslandi. Ísland er herlaust land og á að mati stjórnar Ungra vinstri grænna að vera öðrum þjóðum til eftirbreytni með því að leggjast alfarið gegn stríðsrekstri og öllu honum tengdu. Þrátt fyrir að Íslendingar þurfi nú að glíma við afleiðingar efnahagskreppunnar eigum við að leita annarra leiða heldur en þeirra sem ganga út á að hagnast á og stuðla að neyð annars fólks.
Lesa meira
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu héldu aðalfund sinn að kvöldi þess 26. ágúst. Á fundinum var nýr formaður kosinn en það var Claudia Overesch sem tók við embætti af Snærós Sindradóttur. Ung vinstri græn óska nýrri stjórn velfarnaðar og gæfu á komandi starfsári
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu mótmælir harðlega hugmyndum dómsmálaráðherra sem sagt var frá í Fréttablaðinu þann 16. ágúst og fela í sér stórauknar rannsóknarheimildir lögreglunnar. Með því að heimila njósnir um einstaklinga án án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um saknæmt athæfi er ríkisvaldið komið út á næfurþunnan ís. Út frá grundvallar mannréttinda - og lýðræðissjónarmiðum verður að hafna öllum slíkum hugmyndum.
Lesa meira
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn fimmtudagskvöldið 26. ágúst næstkomandi að Suðurgötu 3 í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er opinn öllum þeim sem hafa áhuga á starfi UVGH, en atkvæðisrétt á fundinum hafa félagar í Ungum vinstri grænum. Fyrirspurnir, lagabreytingatillögur, ályktanir og framboð til stjórnar skulu berast Snærós Sindradóttur, formanni UVGH, á netfangið snaeros@hotmail.com.
Lesa meira
Á fundi stjórnar VG föstudaginn 25. júní síðastliðinn var ákveðið að ráða Auði Lilju Erlingsdóttur í stöðu framkvæmdastýru flokksins frá og með 1. júlí næstkomandi, en þá lætur Drífa Snædal af störfum. Auður Lilja er fyrrverandi formaður Ungra vinstri grænna en er nú varaþingmaður VG í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þá á hún einnig sæti í stjórn flokksins.
Lesa meira
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn dagana 25. og 26. júní næstkomandi á Grand hóteli í Reykjavík. Þrátt fyrir að atkvæðisrétt á fundinum hafi einungis þeir sem kjörnir eru í flokksráð er fundurinn opinn öllum félögum í flokknum. Ung vinstri græn hvetja ungt fólk til að mæta á fundinn. Dagskráin hefst klukkan 17:00 á föstudaginn en hana má lesa í heild sinni á síðunni www.vg.is.
Lesa meiraMálgagninu Íllgresi hefur nú verið dreift til allra félagsmanna í Ungum vinstri grænum, með pósti og útburði. Þó var eitthvað um það að eintök hafi verið send til baka sökum þess að heimilisfang félagsmanna hafi ekki verið rétt. Þeir félagsmenn í UVG sem hafa ekki fengið sent Íllgresi heim til sín eru því beðnir um að hafa samband við Jan Eric Jessen, formann UVG, í síma 615 4433 eða í gegnum netfangið jej4@hi.is - svo hægt sé að koma eintökum til þeirra aðila. Þá geta allir sem vilja eignast eintak af málgagninu nálgast það á Suðurgötu 3 í Reykjavík eða haft samband við formann UVG og óskað eftir að fá það sent.
Lesa meira
Í ljósi linnulausra mannréttindabrota og kúgunar Ísraela gagnvart palestínsku þjóðinni skorar stjórn Ungra vinstri grænna á ríkisstjórn Íslands að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael, tafarlaust.
Lesa meira
Eins og flestum ætti að vera kunnugt fara sveitarstjórnakosningar fram á morgun. Á flestum stöðum opna kjörstaðir klukkan 09:00 og loka klukkan 22:00. Allar upplýsingar um kjörstaði er að finna á vefnum www.kosning.is.
Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur alla til að líta við í kosningakaffi VG og í kosningavökur flokksins sem haldnar verða um land allt. Hægt er að sjá kosningakaffi og -vökur VG með því að smella á fréttina.
Miðvikudaginn 26. maí ætla aðilar úr stjórn Ungra vinstri grænna ásamt Atla Gísasyni, þingmanni Suðurkjördæmis, og frambjóðendum VG í Árborg að sækja þrjá staði í sveitarfélaginu heim. Fyrst verður haldið Í Shell á Stokkseyri milli klukkan 17 og 18. Strax í kjölfarið stendur til að koma við í Gónhól á Eyrarbakka og stoppa við í um það bil klukkustund. Að lokum verður haldið til Selfoss þar sem boðið verður til fundar á kosningaskrifstofu Vinstri grænna að Austurvegi 28 (gömlu Ljósheimar).
Lesa meira
Ung vinstri græn hyggjast færa kosningamiðstöð sína til fólksins milli klukkan 15 og 17 í dag. Til stendur að vera með tónlist, barmmerki og fjör á Austurvelli - og ljúka við málverk sem verður afhent Hönnu Birnu Kristjánsdóttur síðar í vikunni. Allir þeir sem ætla að taka sunnudagsrölt um miðborgina í dag eru því hvattir til að líta við hjá Ungum vinstri grænum.
Lesa meiraBaráttutónleikar Ungra vinstri grænna á Akureyri í Deiglunni í kvöld voru mjög vel heppnaðir. Hljómsveitirnar Buxnaskjónar, Fönkbandið og Sjálfsprottin spévísi ásamt trúbadornum Guðrúnu Veturliðadóttur stóðu sig með stakri prýði. Tónleikarnir voru vel sóttir og bekkirnir í Deiglunni þétt setnir.
Lesa meira
Nóg er um að vera hjá ungu vinstrafólki á Akureyri um þessar mundir. Í gær tók félag vinstrimanna í Menntaskólanum á Akureyri þátt í kappræðum við félag hægrimanna í skólanum. Meðal umræðuefna voro fjármál ríkis og sveitarfélaga, skattar, Icesave-málið, velferðaþjónusta og skipulagsmál á Akureyri. Í dag gaf félag vinstrimanna í MA út róttæka málgagnið Sannleikinn eins og hefð er fyrir á vorin.
Lesa meira
Nóg verður um að vera í kosningamiðstöð UVG næstkomandi fimmtudagskvöld. Boðið verður uppá dýrindis kássu, en borðhald hefst klukkan 19:00. Þá mætir Skúli mennski um klukkutíma síðar og spilar magnaðan blús. Þá geta þeir sem misstu af útgáfupartýi Íllgresis um síðastliðna helgi nælt sér í eintak auk þess sem nýjustu barmmerki UVG verða á boðstólnum.
Lesa meiraMiðvikudaginn 19. maí næstkomandi standa UVG og UVGA að opnum spjallfundi á Húsavík. Fundurinn fer fram í kosningamiðstöð VG í Norðurþingi, að Neðri vör, og hefst klukkan 20:00. Aðilar úr stjórnum UVG og UVGA munu kynna starf og stefnu ungliðahreyfingarinnar og spjalla við gesti fundarins. Heitt verður á könnunni og eru allir sem áhuga hafa velkomnir að mæta á fundinn.
Lesa meiraUng vinstri græn á Akureyri standa fyrir árlegum baráttutónleikum næsta laugardag, 22. maí. Tónleikarnir fara fram í Deiglunni og hefjast klukkan 21:00. Fram koma hljómsveitirnar Buxnaskjónar, Sjálfsprottin spévísi og Fönkbandið auk trúbadorsins Guðrúnar Veturliðadóttur. Að sjálfsögðu er frítt inn á tónleikana. Allir að mæta!
Lesa meiraÍllgresi, málgagn Ungra vinstri grænna, verður gefið út næstkomandi föstudag, 14. maí. Að því tilefni munu Ung vinstri græn bjóða til útgáfupartýs á tveimur stöðum á landinu - annars vegar að Suðurgötu 10 í Reykjavík og hins vegar að Brekkugötu 7a á Akureyri. Partýin hefjast bæði klukkan 21:00.
Lesa meira
Kosningamiðstöð UVG verður venju samkvæmt opin næstkomandi fimmtudag milli klukkan 18:00 og 22:00. Helgi Valur mun mæta með gítarinn og taka nokkur vel valin lög. Léttar veitingar verða í boði og eru allir hjartanlega velkomnir í létt spjall og gítarstemmingu.
Lesa meira
Hreyfimyndahreyfing Ungra vinstri grænna tekur til sýninga nýjustu heimildarmynd Michael Moore, Capitalism: A love story, næstkomandi fimmtudagskvöld. Myndin fer í gang klukkan 20:00 í kosningamiðstöð UVG að Suðurgöu 10. Eftir myndina er gestum velkomið að ræða málin.
Lesa meira
Af óviðráðanlegum orsökum hefur fundi UVG með Auði Lilju Erlingsdóttur í kosningamiðstöð UVG annað kvöld verið aflýst. Kosningamiðstöðin verður næst opin frá klukkan 18:00-22:00 fimmtudaginn 6. maí.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna óskar hinum vinnandi stéttum landsins til hamingju með daginn. Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er nú haldinn hátíðlegur um allt land og hvetur stjórn UVG fólk til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á aðra skipulagða viðburði í tilefni dagsins. Samstaða launafólks er mikilvæg nú sem aldrei fyrr!
Lesa meira
Mánudagskvöldið 3. maí verður kosningamiðstöð Ungra vinstri grænna opin frá 18:00-22:00. Auður Lilja Erlingsdóttir varaþingkona Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs verður með framsögu klukkan 20:00 og kynnir fyrir gestum starf sitt á þingi síðustu vikurnar. Auður Lilja er fyrrum formaður ungliðahreyfingarinnar og situr nú í annað sinn á þingi.
Lesa meira
Ung vinstri græn opna dyrnar að kosningamiðstöð sinni í kvöld! Miðstöðin verður opin frá klukkan 18:00 og er að Suðurgötu 10 í Reykjavík. Dagskrá kvöldsins hefst svo á slaginu 20:00 og er ekki af verri toganum. Elín Eyþórsdóttir stígur á stokk og blúsar fyrir lýðinn og henni á eftir eru stúlkur úr Uppistöðufélaginu með Uglu Egilsdóttur í broddi fylkingar.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna ásamt stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu bjóða til fundar um umhverfismál í kosningamiðstöð Ungra vinstri grænna að Suðurgötu 10 í kvöld miðvikudaginn 28. apríl klukkan 20:00. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, heldur framsögu á fundinum og spjallar við gesti um umhverfismál. Að vanda eru allir áhugasamir hjartanlega velkomnir.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar úrskurði mannréttindadómstóls Evrópu, frá því í morgun, þess efnis að álagning iðnaðarmálagjalds á Íslandi brjóti í bága við mannréttindasáttmála Evrópu. Stjórn Ungra vinstri grænna bendir í þessu samhengi á hversu galið það er að ríkið innheimti sóknargjöld af öllum Íslendingum, hvort sem þeir tilheyri viðurkenndu trúfélagi eða ekki, þar sem sóknarfjöld falli vissulega undir félagsgjöld samkvæmt skilgreiningu mannréttindasáttmálans.
Lesa meiraUng vinstri græn opna dyrnar að kosningamiðstöð sinni næstkomandi fimmtudagskvöld! Miðstöðin er opin frá klukkan 18:00 og er að Suðurgötu 10 í Reykjavík. Dagskrá kvöldsins hefst svo á slaginu 20:00 og er ekki af verri toganum. Elín Eyþórsdóttir stígur á stokk og blúsar fyrir lýðinn og henni á eftir eru stúlkur úr Uppistöðufélaginu með Uglu Egilsdóttur í broddi fylkingar.
Lesa meira
Ung Vinstri græn boða til stóriðjukvölds þriðjudaginn 27. apríl að Suðurgötu 3 í Reykjavík. Öllum áhugasömum er boðið að koma og taka þátt í framkvæmdum Ungra vinstri grænna með hamar, nagla, pensil og hugmyndaflugið að vopni. Húsið verður opið á milli 18:00 og 23:00.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Snærós Sindradóttir, formaður UVGH og frambjóðandi VG í Reykjavík, hefur verið ráðin í ólaunað starf kosningastýru UVG á höfuðborgarsvæðinu. Eins og fram hefur komið mun UVGH halda uppi kosningamiðstöð við Suðurgötu 10 í Reykjavík.
Allir viðburðir UVG í aðdraganda kosningana, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni, verða auglýstir hér á vinstri.is.
Lesa meiraRitstjórn Íllgresis, málgagns Ungra vinstri grænna, stefnir að því að gefa málgagnið út um miðjan maí. Vinna við Íllgresi er komin vel af stað. Ritstjórnin auglýsir eftir efni í blaðið og geta allir áhugasamir sent tölvupóst á netfangið ritstjorn@vinstri.is eða haft samband við Þórunni Ólafsdóttur, ritstýru, í síma 867 8542.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna ásamt stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu bjóða til fundar um umhverfismál í kosningamiðstöð Ungra vinstri grænna að Suðurgötu 10 miðvikudaginn 28. apríl klukkan 20:00. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, heldur framsögu á fundinum og spjallar við gesti um umhverfismál. Að vanda eru allir áhugasamir hjartanlega velkomnir.
Lesa meira
Vinstri hreyfingin - grænt framboð í Reykjavík opnar kosningamiðstöð sína sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 22. apríl næstkomandi. Kosningamiðstöðin er við Suðurgötu 10 og verður hún opin milli 16 og 18 þennan dag. Kosningamiðstöð Ungra vinstri grænna verður opnuð í næstu viku þar sem verða viðburðir að minnsta kosti tvö kvöld í viku. Opnun kosningamiðstöðvar UVG og dagskrá hennar verða auglýst sérstaklega síðar.
Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar því að nú hafi verið samþykkt lög á Alþingi sem kveða á um bann við því að fyrirtæki geri út á nektardans eða nekt starfsmanna sinna að öðru leyti. Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að sterk tengsl eru á milli starfsemi nektarstaða og mansals, kynferðislegs ofbeldis og fíkniefnaneyslu. Það felast einnig mikilvæg skilaboð í lögum sem þessum. Það er ekki í lagi að kaupa sér aðgang að líkama annarrar manneskju. Manneskja er ekki markaðsvara!
Lesa meiraMiðvikudagskvöldið 24. mars ætla Ung vinstri græn að kynna sér og sínum hugmyndir ríkisstjórnarinnar um fyrningarleið aflaheimilda í núverandi mynd. Hugmyndir ríkisstjórnarinnar hafa verið gagnrýndar í herbúðum LÍÚ og fagnað á öðrum vígstöðum. Það er því ljóst að nauðsynlegt er að kynna sér þetta umdeilda mál og vera með á nótunum. Framsögumenn fundarins verða Finnbogi Vikar og Björn Valur Gíslason. Öll eruð þið velkomin.
Lesa meiraRitstjórn Íllgresis, málgagns UVG, var skipuð á fundi stjórnar Ungra vinstri grænna í gær. Ritstjórnina skipa eftirtaldir aðilar:
Atli Sigurðsson
Björn Reynir Halldórsson
Kolbrún Ýrr Rolandsdóttir
Snærós Sindradóttir
Þórunn Ólafsdóttir
Stjórn UVG telur að íslensk stjórnvöld eigi ekki að taka í mál að heimila starfsemi hollenska hernaðarfyrirtækisins E.C.A. Program á Íslandi sem hyggst leigja út orrustuþotur til heræfinga. Framsetning Fréttablaðsins á málinu í morgun er með ólíkindum, og er í raun gagnrýnislaus auglýsing á kostum hervæðingar.
Fundi Ungra vinstri grænna um málefni Palestínu sem halda átti annað kvöld hefur verið frestað til næstkomandi laugardags, 20. mars. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 13:00. Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, og Anna Tómasdóttir, hjúkrunarfræði- og málfræðinemi, halda framsögu.
Ung vinstri græn boða til opins fundar um málefni Palestínu miðvikudaginn 17. mars. Fundurinn fer fram í húsnæði VG að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 20:00. Nú er rúmlega ár síðan Ísraelski herinn réðst síðast inn á landsvæði Palestínumanna við Gazaströndina með hörmulegum afleiðingum. Á hverjum degi þurfa Palestínumenn að gjalda fyrir ofríki Íslraelsmanna og tíðindi af mannfalli eru algengar. Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, fer yfir sögu átakanna í Palestínu og fræðir gesti um stöðu mála þar.
Stjórn Ungra Vinstri grænna fagnar frumvarpi heilbrigðisráðherra, Álfheiðar Ingadóttur, sem miðar að því að fella úr gildi lög 16/1938 sem heimila ófrjósemisaðgerðir á einstaklingum með þroskahömlun eða geðsjúkdóma. Það vekur furðu stjórnar UVG að lögin, sem eru tímaskekkja og brjóta á mannréttindum fólks, séu enn í gildi hér á landi. Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur því þingheim allan til þess að samþykkja frumvarpið einróma og fella lögin úr gildi.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fagnar því fordæmi sem gefið hefur verið fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ýmis mál. Stjórnin skorar á ríkisstjórnina að láta kjósa, samhliða
sveitastjórnarkosningum í vor, um kvótakerfið og aflaheimildir þess, um veru Íslands í árásarbandalaginu NATÓ og hvort aðskilja beri ríki og kirkju.
Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar miðvikudaginn 17. mars næstkomandi um málefni Palestínu. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 í Reykjavík.
Meðal framsögumanna verður Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína. Nánar auglýst síðar.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar þar sem farið verður yfir efnisatriði tveggja frumvarpa sem dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur lagt fram til kynningar. Annars vegar er um að ræða frumvarp um breytingar á útlendingalögum og tekur á málefnum hælisleitenda hér á landi, en hins var frumvarp um nýja flokka dvalarleyfa handa brotaþolum mansals.
Lesa meira
Ung vinstri græn ásamt UVGH boða til opins fundar um sveitarstjórnarmál miðvikudaginn 24. febrúar klukkan 20:00 á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Nú þegar styttist í kosningar er ekki úr vegi að kynna sér málin á sveitarstjórnarstiginu og vera með á nótunum. Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi vinstri grænna og varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fer yfir stöðuna og miðlar af reynslu sinni.
Lesa meira
Fimmtudagskvöldið 18. febrúar munu Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu blása til heljarinnar nýliðapartýs á Suðurgötu 3 klukkan 21:00. Öllu verður tjaldað til með tilheyrandi pubquizzi músík og heitum umræðum. Með þessu vilja Ung vinstri græn bjóða þau ykkar sem eru forvitin um ungliðahreyfinguna velkomin í húsnæði hreyfingarinnar til að kynna sér stefnuna, stjórnmálin og stuðið. Allir hjartanlega velkomnir.
Lesa meiraKarólína Einarsdóttir, 29 ára líffræðingur og leikskólakennari, hefur gefið kost á sér í 1.-2. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi sem fram fer laugardaginn 27. febrúar næstkomandi. Ungliðar náðu afar góðum árangri í forvali flokksins í Reykjavík um síðastliðna helgi þar sem Elín Sigurðardóttir, Snærós Sindradóttir og Vésteinn Valgarðsson náðu öll í hóp efstu átta frambjóðenda.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna mótmælir fyrirhugaðri skerðingu á niðurgreiðslu geðlyfja og lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirra afleiðinga sem það kann að hafa í för með sér. Öllum er ljóst hversu vandasamt og óöfundsvert hlutskipti ríkisstjórnarinnar í fjármálum hins opinbera er og að ekki er hægt að ná fram nauðsynlegri hagræðingu án þess að til niðurskurðar komi. Samt sem áður skorar stjórn Ungra vinstri grænna á heilbrigðisráðherra að endurskoða þessi áform í ljósi þeirra afleiðinga sem skerðingin mun hafa á einstaklinga sem eiga við geðræn vandamál að stríða.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna stendur fyrir tveimur nýliðakvöldum í þessari viku; miðvikudaginn 10. febrúar og fimmtudaginn 11. febrúar. Nýliðakvöldin fara bæði fram í húsnæði VG að Brekkugötu 7a og hefjast bæði klukkan 20:00. Þau verða bæði með svipuðu sniði en hugmyndin með því að hafa tvö nýliðakvöld er að fólk getur þá valið þá dagsetningu sem hentar betur. Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni. Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.
Lesa meiraStjórn Ungra vinstri grænna stendur fyrir nýliðakvöldi á Súfistanum í Hafnarfirði klukkan 20:00 í kvöld. Nýliðakvöld eru hugsuð sem sérstök kynningarkvöld fyrir alla þá sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi UVG með einhverjum hætti en hafa ekki gert það áður. Aðilar úr stjórn UVGH kynna starf og stefnu hreyfingarinnar fyrir fundargestum og svara þeim spurningum sem kunna að vakna.
Lesa meiraForval Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 29. maí nk. fór fram síðastliðinn laugardag. Þrír ungliðar voru meðal þeirra 19 sem gáfu kost á sér í forvalinu og voru þeir allir meðal átta efstu. Elín Sigurðardóttir hafnaði í fjórða sæti í forvalinu, Snærós Sindradóttir í því sjöunda og Vésteinn Valgarðsson í áttunda sæti.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu mun standa fyrir þremur nýliðakvöldum á næstu tveimur vikum. Nýliðakvöld eru hugsuð sem sérstök kynningarkvöld fyrir alla þá sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi UVG með einhverjum hætti en hafa ekki gert það áður. Aðilar úr stjórn UVGH kynna starf og stefnu hreyfingarinnar fyrir fundargestum og svara þeim spurningum sem kunna að vakna. Allt það fólk sem hefur komið sínum sjónarmiðum og hugsjónum á framfæri og tekið þátt í að móta samfélagið á sviði stjórnmálanna byrjaði með einhverjum hætti - nýliðakvöld eru sérstaklega ætluð þeim sem vilja kynnast slíku starfi og stíga sín fyrstu skref.
Lesa meiraStjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar um málefni hælisleitenda þriðjudaginn 2. febrúar næstkomandi. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hefst klukkan 20:30. Nokkrir hælisleitendur sem eru eða hafa verið búsettir í miðstöð hælisleitenda að Fitjum í Reykjanesbæ munu mæta á fundinn og halda framsögu um upplifun sína af því að búa að Fitjum og stöðu hælisleitenda og flóttamanna á Íslandi almennt.
Lesa meiraStjórn Ungra vinstri grænna boðar til spjallfundar þriðjudaginn 19. janúar næstkomandi á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 21:00. Engin framsaga verður haldin á fundinum heldur er hann hugsaður til þess að spjalla og skiptast á skoðunum um nýliðna atburði í íslenskum stjórnmálum, stöðu mála í dag, þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan, stjórnarskrána og málskotsrétt forseta Íslands, eflingu lýðræðis o.s.frv.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur ungt fólk til þess að gefa kost á sér í forvöl Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara laugardaginn 29. maí næstkomandi.
Framboðsfrestur fyrir forvöl í Reykjavík og á Akureyri rennur út næsta laugardag, 16. janúar. Smellið á fyrirsögnina fyrir frekari upplýsingar.
Stjórn Ungra vinstri grænna á Akureyri býður til spjallfundar í húsnæði VG að Brekkugötu 7 laugardaginn 16. janúar nk. Fundurinn er öllum opinn og hefst klukkan 17:00. Gestir fundarins verða Jan Eric Jessen og Guðrún Axfjörð Elínardóttir, formaður og varaformaður UVG. Umræðuefni fundarins er staðan í íslenskum stjórnmálum í dag. Heitt verður á könnunni og léttar veitingar í boði.
Lesa meira
Flokksráðsfundur VG verður haldinn á hótel KEA á Akureyri dagana 15. og 16. janúar næstkomandi. Á fundinum verður meðal annars farið yfir stöðu mála í íslenskum stjórnmálum og rætt um verkefni komandi vikna og mánaða. Þótt einungis kjörnir fulltrúar hafi atkvæðisrétt á fundinum er öllum félögum í VG velkomið að taka þátt í fundinum að öðru leyti.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir stuðningi við frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninganna og hvetur til þess að frumvarpið verði samþykkt án frekari tafa. Öllum er ljóst hversu alvarlegt Icesave-málið er fyrir íslensku þjóðina. Aftur á móti gera allt of fáir sér grein fyrir því að ekki er hægt að leysa málið án þess að þjóðin beri skaða af. Því lengur sem málið stendur óafgreitt þeim mun meiri verður skaðinn.
Lesa meiraStjórn Ungra vinstri grænna fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja Varnarmálastofnun niður. Stofnun Varnarmálastofnunar var ein af þeim slæmu mistökum sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar kom í verk. Stofnunin var aldrei þannig úr garði gerð að hún tryggði raunverulega öryggi Íslendinga, heldur endurspeglaði hún úrelt kaldastríðsviðhorf sem miðuðu að því að auka hernaðarleg umsvif Íslands.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á Akureyri stendur fyrir fundi í húsakynnum VG að Brekkugötu 7A í kvöld. Fundurinn ber yfirskriftina "Hvernig Rauð-Græn ríkisstjórn bjargar Íslandi" og hefst klukkan 20:00. Huginn Þorsteinsson kennari við Háskólann á Akureyri heldur framsögu.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna leggst alfarið gegn tillögum Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra, um frekari niðurskurð á fæðingarorlofi. Rétt er að minna á að kjör nýbakaðra foreldra hafa þegar verið skert umtalsvert á síðasta ári og hámarksgreiðslur lækkaðar.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu vill vekja athygli á umsókn borgarstjórnar til tilnefningar Reykjavíkur sem Græna borg Evrópu (e. European green capital). Umsóknin gefur í skyn að Reykjavík hafi náð framúrskarandi árangri í umhverfisvernd. Stjórn UVGH telur þó að enn sé mjög langt í land.
Lesa meira
Laugardaginn 28. nóvember munu Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu efna til fundar með yfirskriftinni "á Reykjavík skilið að vera græna borg Evrópu?". Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að sækja um tilnefningu titilsins "græna borg Evrópu". Borgarfulltrúarnir Hermann Valsson og Gísli Marteinn Baldursson halda framsögu á fundinum, sem fer fram á Suðurgötu 3 og hefst klukkan 14:00.
Lesa meira
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu bjóða í vöfflukaffi í hádeginu laugardaginn 21. nóvember. Gestum og gangandi er velkomið að líta við, gæða sér á ljúffengum vöfflum og spjalla um daginn og veginn. Vöfflukaffið hefst klukkan 12 og er að Suðurgötu 3.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna krefst þess að ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar taki upp mannúðlega stefnu í málefnum flóttamanna og hætti nú þegar að beita fyrir sig Dyflinarsáttmálanum í stað þess að taka fyrir mál þeirra flóttamanna sem hingað leita skjóls.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason, að hefja að fullu vinnu við framkvæmd fyrirningarleiðarinnar til að afnema kvótakerfið í núverandi mynd í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og stefnu VG.
Lesa meiraÍ tilefni af degi íslenskrar tungu mánudaginn 16. nóvember næstkomandi mun stjórn UVG boða til fundar um íslenskt táknmál. Fundurinn verður haldinn að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 20:00. Frummælandi verður Haukur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Táknsmiðjunnar ehf, en hann hefur um langt skeið barist í málefnum þeirra sem tala táknmál. Sjálfur er Haukur heyrnarlaus og mun því flytja framsöguna á táknmáli. Táknmálstúlkar frá túlkaþjónustu Samskiptastöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra túlka á fundinum.
Lesa meira
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu standa fyrir róttæku kaffihúsakvöldi á Kaffi rót miðvikudaginn 11. nóvember næstkomandi. Lesið verður uppúr pólitískum verkum. Markmið kvöldsins er að slaka á með góðan kaffibolla við hönd, gleyma stund, stað og þjóðfélagsumræðunni og leyfa sér að hverfa aftur til kjarnans þar sem hugsjónir friðar, kvenfrelsis og réttlætis ráða för.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á íslensk stjórnvöld að bregðast strax við þeirri grafalvarlegu stöðu sem blasir við íslenskum garðyrkjubændum. Ljóst er að verði ekkert að gert verða margir garðyrkjubændur að hætta starfsemi sinni með tilheyrandi afleiðingum.
Lesa meira
Fundað verður um Evrópusambandið laugardaginn 7. nóvember. Fundurinn fer fram á Suðurgötu 3 og hefst klukkan 16:00. Gestur fundarins er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG. Meðal annars verður rætt um afstöðu þingflokks VG til Evrópusambandsins og tekið á þeim farvegi sem aðildarumsóknin Íslands að ESB er í. Þá verður fjallað um gagnsæi í samningakerfinu og mikilvægi þess að upplýst og fordómalaus umræða fari fram í þjóðfélaginu.
Lesa meira
Aðalfundur UVG á Akureyri var haldinn í kvöld þar sem línurnar fyrir komandi starfsár voru lagðar. Fram fóru umræður um áherslur í starfsemi vetrarins og staðan í íslenskum stjórnmálum rædd. Bjarni Þóroddsson var endurkjörinn formaður UVGA. Ný stjórn er skipuð eftirtöldum aðilum: Bjarni Þórodsson (formaður), Sindri Geir Óskarsson (varaformaður), Klara Mist Pálsdóttir (ritari), Tinna Ingólfsdóttir (gjaldkeri), Bjarki Símonarson (meðstjórnandi), Bjarki Þórðarson (varamaður).
Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar um málefni flóttamanna fimmtudaginn 5. nóvember nk. Fundurinn verður haldinn í húsnæði VG að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 20:00. Framsögumenn verða Atli Gíslason, þingmaður, Jóhann Björnsson heimspekingur og Sigríður Víðis Jónsdóttir blaðamaður. Meðal þess sem verður til umræðu er Dyflinarsáttmálinn, staða hælisleitenda og flóttamanna á Íslandi í dag og stefna og frammistaða íslenskra stjórnvalda í þessum málefnum.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir furðu sinni á því misrétti sem viðhefst milli trúarhópa í Háskóla Íslands. Auk þess er það ekki hlutverk Háskóla Íslands að byggja upp aðstöðu til trúariðkunar, slíkt á að vera á könnu trúfélaga en ekki menntastofnana.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu telur að úrræðum til handa útigangsfólki sé ábótavant. Það er staðreynd að á krepputímum fjölgar þeim sem þurfa á aðstoð að halda vegna fíknar sinnar og/ eða heimilisleysis. Fullyrt hefur verið að sá fjöldi sem ekki eigi í nein hús að venda skipti hundruðum.
Lesa meira
Nú þarf ríkið að taka á honum stóra sínum og styðja sem flest það sem getur reist íslenskt efnahagslíf við. Í því starfi er ekki skynsamlegt að einblína á stóriðjuna, sem þegar hefur brugðist. Skynsamlegt er að hugsa til framtíðar, líkt og umhverfisráðherra gerir.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Útlendingastofnunar og Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra, frá 14, október síðastliðnum, þess efnis að vísa fjórum flóttamönnum úr landi og senda þá til Grikklands. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað bent á að aðstæður flóttamanna í Grikklandi séu skelfilegar.
Lesa meira
Laugardaginn 17. október nk. efnir stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu til fundar um málefni heimilislausra. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum flokkins að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 11.
Frummælendur á fundinum verða Elísabet Kristjánsdóttir sem starfað hefur við Njálsgötu 74 að uppbyggingu aðstöðu fyrir heimilislausa og Grímur Atlason, sveitarstjóri.
Lesa meira
Í tilefni af alþjóðlegum degi geðheilbrigðismála sem haldinn var laugardaginn 10. október síðastliðinn boða Ung vinstri græn til fundar um geðheilbrigðismál. Fundurinn verður haldinn í húsnæði VG að Suðurgötu 3 fimmtudaginn 15. október og hefst klukkan 20:00. Ragnheiður Jonna Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri 10.okt og formaður Maníu í HÍ, heldur framsögu auk tveggja fulltrúa frá Ungliðahreyfingu Hugarafls.
Lesa meira
Ung vinstri græn halda sinn tíunda landsfund um helgina. Fundurinn fer fram á Hvoli á Hvolsvelli, en hann hefst á morgun laugardag 26. september, og lýkur á sunnudag með kjöri nýrrar stjórnar. Ljóst er að formannsskipti eru framundan í hreyfingunni.
Landsfundur Ungra vinstri grænna fer fram helgina 25.-27. september 2009 á Hvolnum á Hvolsvelli. Ung vinstri græn standa fyrir undirbúningskvöldi fyrir landsfundinn næstkomandi miðvikudagskvöld, 23. september, að Suðurgötu 3. Fundurinn hefst klukkan 20:00.
Aðalfundur UVG á höfuðborgarsvæðinu var haldinn 19. september að Suðurgötu 3 í Reykjavík. Snærós Sindradóttir tók þá við embætti formanns af Brynju Björg Halldórsdóttur auk þess sem ný stjórn var kosin. Fundurinn samþykkti ályktanir um eignarhald á HS orku, um góða menntastefnu og um velferðar- og vinstristjórn.
Landsfundur Ungra vinstri grænna verður haldinn á Hvolsvelli dagana 25.-27. september 2009. Skráning er í gegnum netfangið uvg@vinstri.is. Hér má lesa um dagskrá fundarins og praktísk atriði sem gott er fyrir fundargesti að hafa í huga!
Lesa meira
Tíundi landsfundur Ungra vinstri grænna verður haldinn á Hvolsvelli helgina 25.-27. september næstkomandi. Fundarboð verður sent til félaga í UVG á næstu vikum og dagskrá fundarins auglýst.
Stjórn Ungra vinstri grænna hefur sent frá sér ályktun. Þar er meðal annars sérstök stuðningsyfirlýsing við Ásmund Einar Daðason, þingmann VG í Norðvesturkjördæmi. Einnig eru stjórnarflokkarnir hvattir til þess að leysa úr ESB flækjunni í góðri sátt.
Ung vinstri græn fagna því að til standi að leggja niður Varnarmálastofnun í núverandi mynd og leggja til að heræfingar, loftrýmiseftirlit og önnur hernaðarleg starfsemi verði lögð niður og að peningarnir sem sparast verði nýttir í velferðarkerfinu.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir megnri óánægju með að ekki skuli vera jafnt hlutfall kynja í ráðherraliði nýrrar ríkisstjórnar. Stjórnin gerir þá kröfu að þegar næst verði gerðar breytingar á skipan ráðherra í ríkisstjórninni verði hlutfall kynjanna innan hennar leiðrétt. Slíkt er í samræmi við samþykktir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
Lesa meira
Ung vinstri græn þakka Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir frábært hugsjónastarf í þágu náttúrunnar, kvenfrelsis, félagslegs jafnréttis og friðar í þau 10 ár sem hún hefur setið á þingi.
Lesa meira
Ung vinstri græn fagna baráttudegi verkalýðsins og hinum mikla fólksfjölda sem sýndi í dag samstöðu í baráttu fyrir réttlátara þjóðfélagi.
Ung vinstri græn fagna kosningasigri Vinstri grænna, og sögulegri vinstri- og jafnréttissveiflu. Minnihlutaríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar breyttist í kosningunum í trausta meirihlutastjórn og stjórnarmyndunarviðræður flokkanna eru hafnar. Því fagna Ung vinstri græn, sem hafa lagt áherslu á að hér taki við félagshyggjustjórn eftir kosningar.
Í dag getum við kosið frjálshyggjuna burt, og valið félagshyggju og velferð í staðinn. Við skulum ekki láta það tækifæri fram hjá okkur fara. Setjum X við V í dag.
Ung vinstri græn bjóða í kosningakaffi á Suðurgötu 3 í Reykjavík í dag frá 13-18, og minna á kosningakaffi og kosningavökur Vinstri grænna á kosningamiðstöðvum víðs vegar um landið.
Margir hafa áður kosið í Alþingiskosningum og einhverjir til viðbótar munu kjósa í fyrsta skipti 25. apríl nk. Margir vita hinsvegar ekki hvernig þingsætunum er úthlutað á grundvelli atkvæðis síns. Hérna er því fréttaskýring eftir Erlend Jónsson, gjaldkera UVG, sem útskýrir þetta ferli frá A til Ö.
Í gapastokknum að þessu sinni er Guðrún Axfjörð Elínardóttir. Hún situr í 5. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi.
Í gapastokknum að þessu sinni er Karólína Einarsdóttir. Hún situr í 9. sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi.
Í gapastokknum að þessu sinni er Kári Gautason. Hann situr í 11. sæti á lista VG í Norðausturkjördæmi.
Ung vinstri græn skora á Útlendingastofnun að endurskoða stefnu sína í málefnum flóttamanna og hælisleitenda, sem hingað til virðist einungis hafa falist í því að vísa flóttamönnum úr landi. Hreyfingin hvetur stofnunina til að taka mannúðlegri afstöðu og forgangsraða í þágu mannréttinda, frekar en að fela sig bakvið undarlega túlkun Dyflinnarsáttmálans.
Lesa meira
Í gapastokknum að þessu sinni er Auður Lilja Erlingsdóttir. Hún situr í 4. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Lesa meiraÍllgresi - málgagn Ungra vinstri grænna er komið út og verður dreif um allt land næstu daga, en er einnig aðgengilegt hér á vefnum. Í blaðinu er að finna nauðsynlegt lesefni alla sem vilja taka upplýsta afstöðu áður en þeir ganga inn í kjörklefan næsta laugardag.
Ævintýri ungliðanna heldur áfram enda er kominn dagur tvö í hringferðinni hjá þeim. Komið var við í FNV á Sauðárkróki og menntaskólunum á Akureyri.
Hópurinn mætti náttúrulega á tónleikana hjá UVG sem voru haldnir í Deiglunni í Gilinu.
Í gapastokknum að þessu sinni er Brynja Björg Halldórsdóttir. Hún situr í 7. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Hópur frá UVG er á ferð í kringum landið þessa dagana. Þessi vaski hópur ungliða mun birta ferðasögu sína hérna á vinstri.is eftir hvern dag í hringferðinni. Ferðin hófst að morgni 16. apríl.
Lesa meiraÍ dag, fimmtudaginn 16. apríl, mun fjöldi hagsmunasamtaka námsmanna á Íslandi standa fyrir borgarafundi um menntamál. Hann verður haldinn í stóra sal Háskólabíós kl. 20:00. Fundarstjóri er Sigurjón M. Egilsson.
Á næstu dögum verða nokkrir atburðir í kosningamiðstöð UVG að Suðurgötu 3. Á fimmtudag verður Brynja Björg Halldórsdóttir í spjalli (7. sæti Rvk-N). Á föstudag verður Kristján Ketill Stefánsson með upplestur og spjall (8. sæti Rvk-N).
Síðan verður grillað á laugardag.
Ung vinstri græn fagna skjótum viðbrögðum og vasklegri framgöngu menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur við kröfum námsmanna um sumarnám í háskólum.
Félag Ungra vinstri grænna á Hornafirði var stofnað í gær, mánudaginn 13. apríl. Stofnfundurinn fór fram á Höfn í Hornafirði þar sem félagið samþykkti lög og kaus sér stjórn. Aðalmenn eru Sólveig Morávek, Jóhann Helgi Stefánsson og Andri Indriðason. Varamenn eru Samúel Jóhannsson og Sindri Snær Þorsteinsson.
Í gapastokknum að þessu sinni er Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir. Hún situr í 4. sæti á lista VG í Norðvesturkjördæmi.
Í gapastokknum að þessu sinni er Kristján Ketill Stefánsson. Hann situr í 8. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Núna erum við á vinstri.is að fara í gang með smá kynningu á ungum frambjóðendum á listum fyrir Alþingiskosningar 25. apríl. Þessi liður heitir að venju Gapastokkurinn. Fyrst til þess að taka þátt í honum er Júlíana Garðarsdóttir. Hún situr í 12. sæti á lista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi.
Ung vinstri græn opnuðu glæsilega kosningamiðstöð síðastliðna helgi að Suðurgötu 3. Þar verður opið frá 16-22 alla virka daga fram að kosningum.
Lesa meira
Ung vinstri græn opna kosningamiðstöð sína að Suðurgötu 3 í Reykjavík laugardagskvöldið 4. apríl og bjóða af því tilefni gömlum og nýjum félögum sínum að gleðjast með þeim í upphafi spennandi og skemmtilegrar kosningabaráttu.
Lesa meira
Ung vinstri græn hvetja menntamálaráðherra til að beita sér fyrir því að sem flestir háskólar bjóði upp á sumarannir á komandi sumri. Einnig leggja Ung vinstri græn til að skólagjöld fyrir sumarnám á framhaldsskólastigi verði afnumin.
Lesa meira
UVG bendir á útifund á Austurvelli, kl. 17:00, mánudaginn 30. mars. Tilefnið er að þann 30. mars árið 1949, fyrir sextíu árum síðan, samþykkti Alþingi inngöngu Íslands í Nató.
Lesa meira
Ung vinstri græn lögðu fram drög að fimm ályktanunum, ásamt þremur lagabreytingartillögum fyrir landsfund Vinstri grænna sem fram fór um helgina. Lagabreytingarnar voru samþykktar óbreittar. Ályktanirnar voru allar samþykktar, sumar hverjar með minniháttar breytingum. Tvær ályktanir sem báðar fjölluðu um trúfrelsi voru sameinaðar í eina.
Lesa meira
Félagar í Ungum vinstri grænum voru áberandi á landsfundi Vinstri grænna sem fór fram í Reykjavík um liðna helgi. Auður Lilja Erlingsdóttir, fyrrverandi formaður UVG, var kjörin í stjórn flokksins með glæsibrag auk þess sem sex aðrir félagar UVG voru kjörnir í flokksráð.
Lesa meira
Í dag, 20. mars, hefst landsfundur Vinstri grænna sem stendur yfir til seinnipart sunnudags. Allar upplýsingar um fundinn er að finna á heimasíðu Vinstri grænna, vg.is. Þessi landsfundur hreyfingarinnar er sá fjölmennasti hingað til, enda hefur fjölgað mikið í flokknum að undanförnu. Á fundinum verða lagðar línur fyrir komandi kosningar og helstu baráttumálin rædd.
Ung vinstri græn hafa nú náð því langþráða takmarki að eignast nýja heimasíðu. Síðan er smíðuð af Hugsmiðjunni og er, eins og sjá má, einkar glæsilegt. Ung vinstri græn vonast til þess að síðan muni nýtast vel í starfinu og til þess að veita upplýsingar um það.
Stjórn Ungra vinstri grænna samdi fimm ályktanir sem að hún leggur fram á landsfund Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs. Þessar ályktanir fjalla um: Umhverfisvænar samgöngur, jafnrétti og frelsi í trúmálum, aðskilnað ríkis og kirkju, félagshyggjustjórn og fjölbreytta atvinnuuppbyggingu
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna sendi inn lagabreytingartillögur á landsfund Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænan skorar í ályktun sinni á þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að greiða atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um heimild til samninga við Century Norðurál vegna álversuppbyggingar í Helguvík. Stjórnin telur frumvarpið á margan hátt brjóta gegn stefnu flokksins.
Ung vinstri græn taka af heilum hug undir áskorun fjölmargra félagasamtaka um að Alþingi samþykki frumvarp um að banna kaup á vændi og fylgi þar með fordæmi Norðurlandanna Svíþjóðar og Noregs sem hafa bannað kaup á vændi.
Ung vinstri græn brýna félaga sína, unga sem aldna, og biðja þá um að veita ungu fólki brautagengi í komandi forvali. Niðurstöður forvals á Norðausturlandi voru ákveðin vonbrigði þar sem að enginn undir fertugu náði inn á átta efstu sætin.
Lesa meira
Næstkomandi fimmtudag, þann 12. febrúar, mun félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík velja fulltrúa svæðisfélagsins á landsfund flokksins sem að fram fer dagana 20.-22. mars.
Lesa meira
Ung vinstri græn krefjast þess að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar beiti sér af fullum þunga fyrir því að horfið verði frá stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna tafarlaust...
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænan skorar í ályktun sinni á þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að greiða atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um heimild til samninga við Century Norðurál vegna álversuppbyggingar í Helguvík. Stjórnin telur frumvarpið á margan hátt brjóta gegn stefnu flokksins.
Lesa meiraAðalfundur Ungra vinstri grænna á Austurlandi verður haldinn næstkomandi miðvikudagskvöld, 29. október.
Ung vinstri græn leggja áherslu á ábyrga fjármálastefnu og hvetja stjórnvöld til að spara í fjárlagagerð næsta árs. Í sérstakri sparnaðaráætlun Ungra vinstri grænna sem samþykkt var á landsfundi UVG um þarsíðustu helgi eru tillögur til stjórnvalda um sparnað uppá tæpa 15 milljarða íslenskra króna, sem fæst með því að skera niður ýmis fjárútlát sem eru annaðhvort óþörf eða beinlínis skaðleg að mati UVG.
Lesa meiraAðalfundur Ungra vinstri grænna í Reykjavík var haldinn síðastliðinn laugardag, 27. september 2008. Á fundinum var ákveðið að breyta nafni félagsins í Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu og sameina félög í nágrannasveitafélögum svæðisfélagi Ungra vinstri grænna í Reykjavík. Á fundinum voru samþykktar ályktanir um nektardansstaði, heimgreiðslur, umhverfisvænan ferðamáta, meðhöndlun sorps...
Lesa meiraUng vinstri græn krefjast þess að Árni Mathiesen segi af sér sem fjármálaráðherra og mæla með því að manneskja með betri skilning á þörfum þjóðarinnar taki við.
Lesa meiraMunið kertafleytingarnar á Reykjavíkurtjörn miðvikudagskvöldið 6. ágúst kl. 22:30 og á Akureyri fimmtudagskvöldið 7. ágúst kl. 22:30.
Íllgresi, málgagn Ungra vinstri grænna, aðgengilegt á netinu.
Ung Vinstri-græn hafa útbúið bækling sem og sent með hraðpósti til forsætis- og utanríkisráðherra á fundi þeirra í Rúmeníu. Þar er að finna leiðbeiningar um það hvernig ráðherrarnir geta komist heim frá Rúmeníu án einkaþotu.
Lesa meiraUng vinstri græn hafa gefið út flugrit þar óþægilegra staðreyndir um varnarmálafrumvarp utanríkisráðherra eru dregnar fram í dagsljósið. Auk þess að vera aðgengilegt hér á vefnum verður þeim dreift vítt og breitt um borg og bæ.
Lesa meiraÚtgáfufagnaður vegna útgáfu Íllgresis - málgagns Ungra vinstri grænna verður haldinn næstkomandi föstudagskvöld, 28. mars, klukkan 21:00 á Grand Rokk*.
Lesa meiraStjórnmálaskóli Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn klukkan 11:00 laugardaginn 12.apríl í húsakynnum Vinstri grænna í Hamraborg 1-3 í Kópavogi.
Lesa meiraUng vinstri-græn, ásamt Sambandi ungra framsóknarmanna og Ungum jafnaðarmönnum, boða til skrílsláta á skemmtistaðnum 7-9-13 á morgun, laugardaginn 9. febrúar.
Lesa meiraUng vinstri græn stóðu fyrir fyrsta stjórnmálaskóla sínum á Egilsstöðum um helgina. Hátt í tuttugu ungliðar komu til að læra og ræða saman um pólitíkina og hvernig henni verður best komið á framfæri.
Í ljósi mikilla vinsælda þess að gefa ráðherrum gjafir fyrir þessi áramót buðu Ung vinstri græn ráðherrum að mæta á skrifstofu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að Suðurgötu 3 milli 12-13 í dag, gamlársdag, og taka á móti gjöf frá ungliðahreyfingunni.
Ung vinstri-græn lýsa fulltrúa BAE Systems, eins stærsta stríðstólaframleiðanda heims, óvelkomnna hingað til landsins og biðja þá vinsamlegast að hverfa af landi brott og leggja niður iðju sína.
Lesa meiraUng vinstri-græn telja það ólíðandi að íslensk lög skipti fólki í hópa eftir kynhneigð, enda er kynhneigð einkamál hvers og eins. Því er fáránlegt að tvö hjúskaparlög séu í gildi á Íslandi, önnur fyrir „gagnkynhneigða“ og hin fyrir „samkynheigða“.
Lesa meira