Beint í leiðarkerfi vefsins.
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fagnar því fordæmi sem gefið hefur verið fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ýmis mál. Stjórnin skorar á ríkisstjórnina að láta kjósa, samhliða
sveitastjórnarkosningum í vor, um kvótakerfið og aflaheimildir þess, um veru Íslands í árásarbandalaginu NATÓ og hvort aðskilja beri ríki og kirkju.
Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar miðvikudaginn 17. mars næstkomandi um málefni Palestínu. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 í Reykjavík.
Meðal framsögumanna verður Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína. Nánar auglýst síðar.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar þar sem farið verður yfir efnisatriði tveggja frumvarpa sem dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur lagt fram til kynningar. Annars vegar er um að ræða frumvarp um breytingar á útlendingalögum og tekur á málefnum hælisleitenda hér á landi, en hins var frumvarp um nýja flokka dvalarleyfa handa brotaþolum mansals.
Lesa meira
Ung vinstri græn ásamt UVGH boða til opins fundar um sveitarstjórnarmál miðvikudaginn 24. febrúar klukkan 20:00 á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Nú þegar styttist í kosningar er ekki úr vegi að kynna sér málin á sveitarstjórnarstiginu og vera með á nótunum. Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi vinstri grænna og varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fer yfir stöðuna og miðlar af reynslu sinni.
Lesa meira
Fimmtudagskvöldið 18. febrúar munu Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu blása til heljarinnar nýliðapartýs á Suðurgötu 3 klukkan 21:00. Öllu verður tjaldað til með tilheyrandi pubquizzi músík og heitum umræðum. Með þessu vilja Ung vinstri græn bjóða þau ykkar sem eru forvitin um ungliðahreyfinguna velkomin í húsnæði hreyfingarinnar til að kynna sér stefnuna, stjórnmálin og stuðið. Allir hjartanlega velkomnir.
Lesa meiraKarólína Einarsdóttir, 29 ára líffræðingur og leikskólakennari, hefur gefið kost á sér í 1.-2. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi sem fram fer laugardaginn 27. febrúar næstkomandi. Ungliðar náðu afar góðum árangri í forvali flokksins í Reykjavík um síðastliðna helgi þar sem Elín Sigurðardóttir, Snærós Sindradóttir og Vésteinn Valgarðsson náðu öll í hóp efstu átta frambjóðenda.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna mótmælir fyrirhugaðri skerðingu á niðurgreiðslu geðlyfja og lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirra afleiðinga sem það kann að hafa í för með sér. Öllum er ljóst hversu vandasamt og óöfundsvert hlutskipti ríkisstjórnarinnar í fjármálum hins opinbera er og að ekki er hægt að ná fram nauðsynlegri hagræðingu án þess að til niðurskurðar komi. Samt sem áður skorar stjórn Ungra vinstri grænna á heilbrigðisráðherra að endurskoða þessi áform í ljósi þeirra afleiðinga sem skerðingin mun hafa á einstaklinga sem eiga við geðræn vandamál að stríða.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna stendur fyrir tveimur nýliðakvöldum í þessari viku; miðvikudaginn 10. febrúar og fimmtudaginn 11. febrúar. Nýliðakvöldin fara bæði fram í húsnæði VG að Brekkugötu 7a og hefjast bæði klukkan 20:00. Þau verða bæði með svipuðu sniði en hugmyndin með því að hafa tvö nýliðakvöld er að fólk getur þá valið þá dagsetningu sem hentar betur. Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni. Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.
Lesa meiraStjórn Ungra vinstri grænna stendur fyrir nýliðakvöldi á Súfistanum í Hafnarfirði klukkan 20:00 í kvöld. Nýliðakvöld eru hugsuð sem sérstök kynningarkvöld fyrir alla þá sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi UVG með einhverjum hætti en hafa ekki gert það áður. Aðilar úr stjórn UVGH kynna starf og stefnu hreyfingarinnar fyrir fundargestum og svara þeim spurningum sem kunna að vakna.
Lesa meiraForval Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 29. maí nk. fór fram síðastliðinn laugardag. Þrír ungliðar voru meðal þeirra 19 sem gáfu kost á sér í forvalinu og voru þeir allir meðal átta efstu. Elín Sigurðardóttir hafnaði í fjórða sæti í forvalinu, Snærós Sindradóttir í því sjöunda og Vésteinn Valgarðsson í áttunda sæti.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu mun standa fyrir þremur nýliðakvöldum á næstu tveimur vikum. Nýliðakvöld eru hugsuð sem sérstök kynningarkvöld fyrir alla þá sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi UVG með einhverjum hætti en hafa ekki gert það áður. Aðilar úr stjórn UVGH kynna starf og stefnu hreyfingarinnar fyrir fundargestum og svara þeim spurningum sem kunna að vakna. Allt það fólk sem hefur komið sínum sjónarmiðum og hugsjónum á framfæri og tekið þátt í að móta samfélagið á sviði stjórnmálanna byrjaði með einhverjum hætti - nýliðakvöld eru sérstaklega ætluð þeim sem vilja kynnast slíku starfi og stíga sín fyrstu skref.
Lesa meiraStjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar um málefni hælisleitenda þriðjudaginn 2. febrúar næstkomandi. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hefst klukkan 20:30. Nokkrir hælisleitendur sem eru eða hafa verið búsettir í miðstöð hælisleitenda að Fitjum í Reykjanesbæ munu mæta á fundinn og halda framsögu um upplifun sína af því að búa að Fitjum og stöðu hælisleitenda og flóttamanna á Íslandi almennt.
Lesa meiraStjórn Ungra vinstri grænna boðar til spjallfundar þriðjudaginn 19. janúar næstkomandi á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 21:00. Engin framsaga verður haldin á fundinum heldur er hann hugsaður til þess að spjalla og skiptast á skoðunum um nýliðna atburði í íslenskum stjórnmálum, stöðu mála í dag, þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan, stjórnarskrána og málskotsrétt forseta Íslands, eflingu lýðræðis o.s.frv.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur ungt fólk til þess að gefa kost á sér í forvöl Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara laugardaginn 29. maí næstkomandi.
Framboðsfrestur fyrir forvöl í Reykjavík og á Akureyri rennur út næsta laugardag, 16. janúar. Smellið á fyrirsögnina fyrir frekari upplýsingar.
Stjórn Ungra vinstri grænna á Akureyri býður til spjallfundar í húsnæði VG að Brekkugötu 7 laugardaginn 16. janúar nk. Fundurinn er öllum opinn og hefst klukkan 17:00. Gestir fundarins verða Jan Eric Jessen og Guðrún Axfjörð Elínardóttir, formaður og varaformaður UVG. Umræðuefni fundarins er staðan í íslenskum stjórnmálum í dag. Heitt verður á könnunni og léttar veitingar í boði.
Lesa meira
Flokksráðsfundur VG verður haldinn á hótel KEA á Akureyri dagana 15. og 16. janúar næstkomandi. Á fundinum verður meðal annars farið yfir stöðu mála í íslenskum stjórnmálum og rætt um verkefni komandi vikna og mánaða. Þótt einungis kjörnir fulltrúar hafi atkvæðisrétt á fundinum er öllum félögum í VG velkomið að taka þátt í fundinum að öðru leyti.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir stuðningi við frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninganna og hvetur til þess að frumvarpið verði samþykkt án frekari tafa. Öllum er ljóst hversu alvarlegt Icesave-málið er fyrir íslensku þjóðina. Aftur á móti gera allt of fáir sér grein fyrir því að ekki er hægt að leysa málið án þess að þjóðin beri skaða af. Því lengur sem málið stendur óafgreitt þeim mun meiri verður skaðinn.
Lesa meiraStjórn Ungra vinstri grænna fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja Varnarmálastofnun niður. Stofnun Varnarmálastofnunar var ein af þeim slæmu mistökum sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar kom í verk. Stofnunin var aldrei þannig úr garði gerð að hún tryggði raunverulega öryggi Íslendinga, heldur endurspeglaði hún úrelt kaldastríðsviðhorf sem miðuðu að því að auka hernaðarleg umsvif Íslands.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á Akureyri stendur fyrir fundi í húsakynnum VG að Brekkugötu 7A í kvöld. Fundurinn ber yfirskriftina "Hvernig Rauð-Græn ríkisstjórn bjargar Íslandi" og hefst klukkan 20:00. Huginn Þorsteinsson kennari við Háskólann á Akureyri heldur framsögu.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna leggst alfarið gegn tillögum Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra, um frekari niðurskurð á fæðingarorlofi. Rétt er að minna á að kjör nýbakaðra foreldra hafa þegar verið skert umtalsvert á síðasta ári og hámarksgreiðslur lækkaðar.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu vill vekja athygli á umsókn borgarstjórnar til tilnefningar Reykjavíkur sem Græna borg Evrópu (e. European green capital). Umsóknin gefur í skyn að Reykjavík hafi náð framúrskarandi árangri í umhverfisvernd. Stjórn UVGH telur þó að enn sé mjög langt í land.
Lesa meira
Laugardaginn 28. nóvember munu Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu efna til fundar með yfirskriftinni "á Reykjavík skilið að vera græna borg Evrópu?". Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að sækja um tilnefningu titilsins "græna borg Evrópu". Borgarfulltrúarnir Hermann Valsson og Gísli Marteinn Baldursson halda framsögu á fundinum, sem fer fram á Suðurgötu 3 og hefst klukkan 14:00.
Lesa meira
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu bjóða í vöfflukaffi í hádeginu laugardaginn 21. nóvember. Gestum og gangandi er velkomið að líta við, gæða sér á ljúffengum vöfflum og spjalla um daginn og veginn. Vöfflukaffið hefst klukkan 12 og er að Suðurgötu 3.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna krefst þess að ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar taki upp mannúðlega stefnu í málefnum flóttamanna og hætti nú þegar að beita fyrir sig Dyflinarsáttmálanum í stað þess að taka fyrir mál þeirra flóttamanna sem hingað leita skjóls.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason, að hefja að fullu vinnu við framkvæmd fyrirningarleiðarinnar til að afnema kvótakerfið í núverandi mynd í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og stefnu VG.
Lesa meiraÍ tilefni af degi íslenskrar tungu mánudaginn 16. nóvember næstkomandi mun stjórn UVG boða til fundar um íslenskt táknmál. Fundurinn verður haldinn að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 20:00. Frummælandi verður Haukur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Táknsmiðjunnar ehf, en hann hefur um langt skeið barist í málefnum þeirra sem tala táknmál. Sjálfur er Haukur heyrnarlaus og mun því flytja framsöguna á táknmáli. Táknmálstúlkar frá túlkaþjónustu Samskiptastöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra túlka á fundinum.
Lesa meira
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu standa fyrir róttæku kaffihúsakvöldi á Kaffi rót miðvikudaginn 11. nóvember næstkomandi. Lesið verður uppúr pólitískum verkum. Markmið kvöldsins er að slaka á með góðan kaffibolla við hönd, gleyma stund, stað og þjóðfélagsumræðunni og leyfa sér að hverfa aftur til kjarnans þar sem hugsjónir friðar, kvenfrelsis og réttlætis ráða för.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á íslensk stjórnvöld að bregðast strax við þeirri grafalvarlegu stöðu sem blasir við íslenskum garðyrkjubændum. Ljóst er að verði ekkert að gert verða margir garðyrkjubændur að hætta starfsemi sinni með tilheyrandi afleiðingum.
Lesa meira
Fundað verður um Evrópusambandið laugardaginn 7. nóvember. Fundurinn fer fram á Suðurgötu 3 og hefst klukkan 16:00. Gestur fundarins er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG. Meðal annars verður rætt um afstöðu þingflokks VG til Evrópusambandsins og tekið á þeim farvegi sem aðildarumsóknin Íslands að ESB er í. Þá verður fjallað um gagnsæi í samningakerfinu og mikilvægi þess að upplýst og fordómalaus umræða fari fram í þjóðfélaginu.
Lesa meira
Aðalfundur UVG á Akureyri var haldinn í kvöld þar sem línurnar fyrir komandi starfsár voru lagðar. Fram fóru umræður um áherslur í starfsemi vetrarins og staðan í íslenskum stjórnmálum rædd. Bjarni Þóroddsson var endurkjörinn formaður UVGA. Ný stjórn er skipuð eftirtöldum aðilum: Bjarni Þórodsson (formaður), Sindri Geir Óskarsson (varaformaður), Klara Mist Pálsdóttir (ritari), Tinna Ingólfsdóttir (gjaldkeri), Bjarki Símonarson (meðstjórnandi), Bjarki Þórðarson (varamaður).
Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar um málefni flóttamanna fimmtudaginn 5. nóvember nk. Fundurinn verður haldinn í húsnæði VG að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 20:00. Framsögumenn verða Atli Gíslason, þingmaður, Jóhann Björnsson heimspekingur og Sigríður Víðis Jónsdóttir blaðamaður. Meðal þess sem verður til umræðu er Dyflinarsáttmálinn, staða hælisleitenda og flóttamanna á Íslandi í dag og stefna og frammistaða íslenskra stjórnvalda í þessum málefnum.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir furðu sinni á því misrétti sem viðhefst milli trúarhópa í Háskóla Íslands. Auk þess er það ekki hlutverk Háskóla Íslands að byggja upp aðstöðu til trúariðkunar, slíkt á að vera á könnu trúfélaga en ekki menntastofnana.
Lesa meira
Ung vinstri græn á Akureyri boða til aðalfundar fimmtudaginn 5. nóvember að brekkugötu 7A á Akureyri. Á dagksrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, svo sem skýrsla fráfarandi stjórnar, kjör nýrrar stjórnar, lagabreytingar, almenn stjórnmálaumræða og afgreiðsla ályktanna..
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu telur að úrræðum til handa útigangsfólki sé ábótavant. Það er staðreynd að á krepputímum fjölgar þeim sem þurfa á aðstoð að halda vegna fíknar sinnar og/ eða heimilisleysis. Fullyrt hefur verið að sá fjöldi sem ekki eigi í nein hús að venda skipti hundruðum.
Lesa meira
Nú þarf ríkið að taka á honum stóra sínum og styðja sem flest það sem getur reist íslenskt efnahagslíf við. Í því starfi er ekki skynsamlegt að einblína á stóriðjuna, sem þegar hefur brugðist. Skynsamlegt er að hugsa til framtíðar, líkt og umhverfisráðherra gerir.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Útlendingastofnunar og Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra, frá 14, október síðastliðnum, þess efnis að vísa fjórum flóttamönnum úr landi og senda þá til Grikklands. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað bent á að aðstæður flóttamanna í Grikklandi séu skelfilegar.
Lesa meira
Laugardaginn 17. október nk. efnir stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu til fundar um málefni heimilislausra. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum flokkins að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 11.
Frummælendur á fundinum verða Elísabet Kristjánsdóttir sem starfað hefur við Njálsgötu 74 að uppbyggingu aðstöðu fyrir heimilislausa og Grímur Atlason, sveitarstjóri.
Lesa meira
Í tilefni af alþjóðlegum degi geðheilbrigðismála sem haldinn var laugardaginn 10. október síðastliðinn boða Ung vinstri græn til fundar um geðheilbrigðismál. Fundurinn verður haldinn í húsnæði VG að Suðurgötu 3 fimmtudaginn 15. október og hefst klukkan 20:00. Ragnheiður Jonna Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri 10.okt og formaður Maníu í HÍ, heldur framsögu auk tveggja fulltrúa frá Ungliðahreyfingu Hugarafls.
Lesa meira
Ung vinstri græn halda sinn tíunda landsfund um helgina. Fundurinn fer fram á Hvoli á Hvolsvelli, en hann hefst á morgun laugardag 26. september, og lýkur á sunnudag með kjöri nýrrar stjórnar. Ljóst er að formannsskipti eru framundan í hreyfingunni.
Landsfundur Ungra vinstri grænna fer fram helgina 25.-27. september 2009 á Hvolnum á Hvolsvelli. Ung vinstri græn standa fyrir undirbúningskvöldi fyrir landsfundinn næstkomandi miðvikudagskvöld, 23. september, að Suðurgötu 3. Fundurinn hefst klukkan 20:00.
Aðalfundur UVG á höfuðborgarsvæðinu var haldinn 19. september að Suðurgötu 3 í Reykjavík. Snærós Sindradóttir tók þá við embætti formanns af Brynju Björg Halldórsdóttur auk þess sem ný stjórn var kosin. Fundurinn samþykkti ályktanir um eignarhald á HS orku, um góða menntastefnu og um velferðar- og vinstristjórn.
Landsfundur Ungra vinstri grænna verður haldinn á Hvolsvelli dagana 25.-27. september 2009. Skráning er í gegnum netfangið uvg@vinstri.is. Hér má lesa um dagskrá fundarins og praktísk atriði sem gott er fyrir fundargesti að hafa í huga!
Lesa meira
Tíundi landsfundur Ungra vinstri grænna verður haldinn á Hvolsvelli helgina 25.-27. september næstkomandi. Fundarboð verður sent til félaga í UVG á næstu vikum og dagskrá fundarins auglýst.
Stjórn Ungra vinstri grænna hefur sent frá sér ályktun. Þar er meðal annars sérstök stuðningsyfirlýsing við Ásmund Einar Daðason, þingmann VG í Norðvesturkjördæmi. Einnig eru stjórnarflokkarnir hvattir til þess að leysa úr ESB flækjunni í góðri sátt.
Ung vinstri græn fagna því að til standi að leggja niður Varnarmálastofnun í núverandi mynd og leggja til að heræfingar, loftrýmiseftirlit og önnur hernaðarleg starfsemi verði lögð niður og að peningarnir sem sparast verði nýttir í velferðarkerfinu.
Lesa meira
Ungliðinn Arndís Soffía Sigurðardóttir hefur tekið sæti á Alþingi í fjarveru Atla Gíslasonar. Reyndar verður hún ekki lengi ungliði á þingi, því hún verður 31 árs á morgun, 6. júní. Ungliðar eru þeir sem eru yngri en 31 árs.
Af 14 þingmönnum Vinstri grænna á Aþingi eru nú tveir ungliðar, hinn er Ásmundur Daðason sem er jafnframt yngstur á þinginu.
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir megnri óánægju með að ekki skuli vera jafnt hlutfall kynja í ráðherraliði nýrrar ríkisstjórnar. Stjórnin gerir þá kröfu að þegar næst verði gerðar breytingar á skipan ráðherra í ríkisstjórninni verði hlutfall kynjanna innan hennar leiðrétt. Slíkt er í samræmi við samþykktir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
Lesa meira
Ung vinstri græn þakka Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir frábært hugsjónastarf í þágu náttúrunnar, kvenfrelsis, félagslegs jafnréttis og friðar í þau 10 ár sem hún hefur setið á þingi.
Lesa meira
Ung vinstri græn fagna baráttudegi verkalýðsins og hinum mikla fólksfjölda sem sýndi í dag samstöðu í baráttu fyrir réttlátara þjóðfélagi.
Ung vinstri græn fagna kosningasigri Vinstri grænna, og sögulegri vinstri- og jafnréttissveiflu. Minnihlutaríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar breyttist í kosningunum í trausta meirihlutastjórn og stjórnarmyndunarviðræður flokkanna eru hafnar. Því fagna Ung vinstri græn, sem hafa lagt áherslu á að hér taki við félagshyggjustjórn eftir kosningar.
Í dag getum við kosið frjálshyggjuna burt, og valið félagshyggju og velferð í staðinn. Við skulum ekki láta það tækifæri fram hjá okkur fara. Setjum X við V í dag.
Ung vinstri græn bjóða í kosningakaffi á Suðurgötu 3 í Reykjavík í dag frá 13-18, og minna á kosningakaffi og kosningavökur Vinstri grænna á kosningamiðstöðvum víðs vegar um landið.
Margir hafa áður kosið í Alþingiskosningum og einhverjir til viðbótar munu kjósa í fyrsta skipti 25. apríl nk. Margir vita hinsvegar ekki hvernig þingsætunum er úthlutað á grundvelli atkvæðis síns. Hérna er því fréttaskýring eftir Erlend Jónsson, gjaldkera UVG, sem útskýrir þetta ferli frá A til Ö.
Í gapastokknum að þessu sinni er Guðrún Axfjörð Elínardóttir. Hún situr í 5. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi.
Í gapastokknum að þessu sinni er Karólína Einarsdóttir. Hún situr í 9. sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi.
Í gapastokknum að þessu sinni er Kári Gautason. Hann situr í 11. sæti á lista VG í Norðausturkjördæmi.
Ung vinstri græn skora á Útlendingastofnun að endurskoða stefnu sína í málefnum flóttamanna og hælisleitenda, sem hingað til virðist einungis hafa falist í því að vísa flóttamönnum úr landi. Hreyfingin hvetur stofnunina til að taka mannúðlegri afstöðu og forgangsraða í þágu mannréttinda, frekar en að fela sig bakvið undarlega túlkun Dyflinnarsáttmálans.
Lesa meira
Í gapastokknum að þessu sinni er Auður Lilja Erlingsdóttir. Hún situr í 4. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Lesa meiraÍllgresi - málgagn Ungra vinstri grænna er komið út og verður dreif um allt land næstu daga, en er einnig aðgengilegt hér á vefnum. Í blaðinu er að finna nauðsynlegt lesefni alla sem vilja taka upplýsta afstöðu áður en þeir ganga inn í kjörklefan næsta laugardag.
Ævintýri ungliðanna heldur áfram enda er kominn dagur tvö í hringferðinni hjá þeim. Komið var við í FNV á Sauðárkróki og menntaskólunum á Akureyri.
Hópurinn mætti náttúrulega á tónleikana hjá UVG sem voru haldnir í Deiglunni í Gilinu.
Í gapastokknum að þessu sinni er Brynja Björg Halldórsdóttir. Hún situr í 7. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Hópur frá UVG er á ferð í kringum landið þessa dagana. Þessi vaski hópur ungliða mun birta ferðasögu sína hérna á vinstri.is eftir hvern dag í hringferðinni. Ferðin hófst að morgni 16. apríl.
Lesa meiraÍ dag, fimmtudaginn 16. apríl, mun fjöldi hagsmunasamtaka námsmanna á Íslandi standa fyrir borgarafundi um menntamál. Hann verður haldinn í stóra sal Háskólabíós kl. 20:00. Fundarstjóri er Sigurjón M. Egilsson.
Á næstu dögum verða nokkrir atburðir í kosningamiðstöð UVG að Suðurgötu 3. Á fimmtudag verður Brynja Björg Halldórsdóttir í spjalli (7. sæti Rvk-N). Á föstudag verður Kristján Ketill Stefánsson með upplestur og spjall (8. sæti Rvk-N).
Síðan verður grillað á laugardag.
Ung vinstri græn fagna skjótum viðbrögðum og vasklegri framgöngu menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur við kröfum námsmanna um sumarnám í háskólum.
Félag Ungra vinstri grænna á Hornafirði var stofnað í gær, mánudaginn 13. apríl. Stofnfundurinn fór fram á Höfn í Hornafirði þar sem félagið samþykkti lög og kaus sér stjórn. Aðalmenn eru Sólveig Morávek, Jóhann Helgi Stefánsson og Andri Indriðason. Varamenn eru Samúel Jóhannsson og Sindri Snær Þorsteinsson.
Í gapastokknum að þessu sinni er Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir. Hún situr í 4. sæti á lista VG í Norðvesturkjördæmi.
Í gapastokknum að þessu sinni er Kristján Ketill Stefánsson. Hann situr í 8. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Núna erum við á vinstri.is að fara í gang með smá kynningu á ungum frambjóðendum á listum fyrir Alþingiskosningar 25. apríl. Þessi liður heitir að venju Gapastokkurinn. Fyrst til þess að taka þátt í honum er Júlíana Garðarsdóttir. Hún situr í 12. sæti á lista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi.
Ung vinstri græn opnuðu glæsilega kosningamiðstöð síðastliðna helgi að Suðurgötu 3. Þar verður opið frá 16-22 alla virka daga fram að kosningum.
Lesa meira
Ung vinstri græn opna kosningamiðstöð sína að Suðurgötu 3 í Reykjavík laugardagskvöldið 4. apríl og bjóða af því tilefni gömlum og nýjum félögum sínum að gleðjast með þeim í upphafi spennandi og skemmtilegrar kosningabaráttu.
Lesa meira
Ung vinstri græn hvetja menntamálaráðherra til að beita sér fyrir því að sem flestir háskólar bjóði upp á sumarannir á komandi sumri. Einnig leggja Ung vinstri græn til að skólagjöld fyrir sumarnám á framhaldsskólastigi verði afnumin.
Lesa meira
UVG bendir á útifund á Austurvelli, kl. 17:00, mánudaginn 30. mars. Tilefnið er að þann 30. mars árið 1949, fyrir sextíu árum síðan, samþykkti Alþingi inngöngu Íslands í Nató.
Lesa meira
Ung vinstri græn lögðu fram drög að fimm ályktanunum, ásamt þremur lagabreytingartillögum fyrir landsfund Vinstri grænna sem fram fór um helgina. Lagabreytingarnar voru samþykktar óbreittar. Ályktanirnar voru allar samþykktar, sumar hverjar með minniháttar breytingum. Tvær ályktanir sem báðar fjölluðu um trúfrelsi voru sameinaðar í eina.
Lesa meira
Félagar í Ungum vinstri grænum voru áberandi á landsfundi Vinstri grænna sem fór fram í Reykjavík um liðna helgi. Auður Lilja Erlingsdóttir, fyrrverandi formaður UVG, var kjörin í stjórn flokksins með glæsibrag auk þess sem sex aðrir félagar UVG voru kjörnir í flokksráð.
Lesa meira
Í dag, 20. mars, hefst landsfundur Vinstri grænna sem stendur yfir til seinnipart sunnudags. Allar upplýsingar um fundinn er að finna á heimasíðu Vinstri grænna, vg.is. Þessi landsfundur hreyfingarinnar er sá fjölmennasti hingað til, enda hefur fjölgað mikið í flokknum að undanförnu. Á fundinum verða lagðar línur fyrir komandi kosningar og helstu baráttumálin rædd.
Ung vinstri græn hafa nú náð því langþráða takmarki að eignast nýja heimasíðu. Síðan er smíðuð af Hugsmiðjunni og er, eins og sjá má, einkar glæsilegt. Ung vinstri græn vonast til þess að síðan muni nýtast vel í starfinu og til þess að veita upplýsingar um það.
Stjórn Ungra vinstri grænna samdi fimm ályktanir sem að hún leggur fram á landsfund Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs. Þessar ályktanir fjalla um: Umhverfisvænar samgöngur, jafnrétti og frelsi í trúmálum, aðskilnað ríkis og kirkju, félagshyggjustjórn og fjölbreytta atvinnuuppbyggingu
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænna sendi inn lagabreytingartillögur á landsfund Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænan skorar í ályktun sinni á þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að greiða atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um heimild til samninga við Century Norðurál vegna álversuppbyggingar í Helguvík. Stjórnin telur frumvarpið á margan hátt brjóta gegn stefnu flokksins.
Ung vinstri græn taka af heilum hug undir áskorun fjölmargra félagasamtaka um að Alþingi samþykki frumvarp um að banna kaup á vændi og fylgi þar með fordæmi Norðurlandanna Svíþjóðar og Noregs sem hafa bannað kaup á vændi.
Ung vinstri græn brýna félaga sína, unga sem aldna, og biðja þá um að veita ungu fólki brautagengi í komandi forvali. Niðurstöður forvals á Norðausturlandi voru ákveðin vonbrigði þar sem að enginn undir fertugu náði inn á átta efstu sætin.
Lesa meira
Næstkomandi fimmtudag, þann 12. febrúar, mun félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík velja fulltrúa svæðisfélagsins á landsfund flokksins sem að fram fer dagana 20.-22. mars.
Lesa meira
Ung vinstri græn krefjast þess að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar beiti sér af fullum þunga fyrir því að horfið verði frá stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna tafarlaust...
Lesa meira
Stjórn Ungra vinstri grænan skorar í ályktun sinni á þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að greiða atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um heimild til samninga við Century Norðurál vegna álversuppbyggingar í Helguvík. Stjórnin telur frumvarpið á margan hátt brjóta gegn stefnu flokksins.
Lesa meira