Fréttasafn
Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael
Stjórn Ungra vinstri grænna fordæmir árás Ísraelshers á skipalest hjálparsamtaka á leið með matvörur og nauðsynjar til Palestínu í nótt. Í ljósi linnulausra mannréttindabrota og kúgunar Ísraela gagnvart palestínsku þjóðinni skorar stjórn Ungra vinstri grænna á ríkisstjórn Íslands að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael, tafarlaust.

