Úrskurði mannréttindadómstólsins fagnað
Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar úrskurði mannréttindadómstóls Evrópu, frá því í morgun, þess efnis að álagning iðnaðarmálagjalds á Íslandi brjóti í bága við mannréttindasáttmála Evrópu. Iðnaðarmálagjald er 0,08% álag sem lagt er á allan iðnað í landinu.
Ung vinstri græn hafa ítrekað lagt til að ríkið hætti að innheimta iðnaðarmálagjald fyrir Samtök iðnaðarins eða fjármagna þau með öðrum hætti. Samtök iðnaðarins eru pólitísk hagsmunasamtök og það er ekki hlutverk ríkisins að innheimta félagsgjöld fyrir samtök af slíku tagi.
Stjórn Ungra vinstri grænna bendir í þessu samhengi á hversu galið það er að ríkið innheimti sóknargjöld af öllum Íslendingum, hvort sem þeir tilheyri viðurkenndu trúfélagi eða ekki, þar sem sóknarfjöld falli vissulega undir félagsgjöld samkvæmt skilgreiningu mannréttindasáttmálans.

