Fréttasafn
Nektardans loksins bannaður
Stjórn Ungra vinstri grænna fagnar því að nú hafi verið samþykkt lög á Alþingi sem kveða á um bann við því að fyrirtæki geri út á nektardans eða nekt starfsmanna sinna að öðru leyti. Stjórn Ungra vinstri grænna telur löngu tímabært að frumvarpið sem ítrekað hefur verið lagt fram hafi loks verið samþykkt. Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að sterk tengsl eru á milli starfsemi nektarstaða og mansals, kynferðislegs ofbeldis og fíkniefnaneyslu. Það felast einnig mikilvæg skilaboð í lögum sem þessum. Það er ekki í lagi að kaupa sér aðgang að líkama annarrar manneskju. Manneskja er ekki markaðsvara!

