Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ríkisstjórnin hafni hervæðingu

  • Mótmæli 3

Stjórn Ungra vinstri grænna telur að íslensk stjórnvöld eigi ekki að taka í mál að heimila starfsemi hollenska hernaðarfyrirtækisins E.C.A. Program á Íslandi sem hyggst leigja út orrustuþotur til heræfinga.

Framsetning Fréttablaðsins á málinu í morgun er með ólíkindum, og er í raun gagnrýnislaus auglýsing á kostum hervæðingar.

Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á íslensk stjórnvöld að hafna tafarlaust beiðni fyrirtækisins um að hefja starfsemi hér á landi og gefa þannig skýr skilaboð um að Ísland leggist gegn hernaðarlegri uppbyggingu. Mögulegur fjárhagslegur ávinningur réttlætir ekki á nokkurn hátt að Íslendingar leggi blessun sína yfir hernað og stríð.

Þá ítrekar stjórn Ungra vinstri grænna andstöðu sína við hvers kyns hernaðartengda starfsemi á Íslandi og vonbrigði með að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi ekki bundið endi á heræfingar í landinu. Þátttaka Íslands í hernaðarbandalaginu NATO er með öllu óásættanleg.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica