Frumvarpi heilbrigðisráðherra fagnað
Stjórn Ungra Vinstri grænna fagnar frumvarpi heilbrigðisráðherra, Álfheiðar Ingadóttur, sem miðar að því að fella úr gildi lög 16/1938 sem heimila ófrjósemisaðgerðir á einstaklingum með þroskahömlun eða geðsjúkdóma. Það vekur furðu stjórnar UVG að lögin, sem eru tímaskekkja og brjóta á mannréttindum fólks, séu enn í gildi hér á landi. Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur því þingheim allan til þess að samþykkja frumvarpið einróma og fella lögin úr gildi. Það liggur í augum uppi að lög sem brjóta á mannréttindum þroskahamlaðra einstaklinga og þeim sem glíma við geðsjúkdóma eiga ekki heima í nútíma samfélagi og finnst stjórn UVG löngu tímabært að sýna þessum einstaklingum tilskilda virðingu.

