Niðurskurði í geðheilbrigðismálum mótmælt
Stjórn Ungra vinstri grænna mótmælir fyrirhugaðri skerðingu á niðurgreiðslu geðlyfja og lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirra afleiðinga sem það kann að hafa í för með sér.
Öllum er ljóst hversu vandasamt og óöfundsvert hlutskipti ríkisstjórnarinnar í fjármálum hins opinbera er og að ekki er hægt að ná fram nauðsynlegri hagræðingu án þess að til niðurskurðar komi. Samt sem áður skorar stjórn Ungra vinstri grænna á heilbrigðisráðherra að endurskoða þessi áform í ljósi þeirra afleiðinga sem skerðingin mun hafa á einstaklinga sem eiga við geðræn vandamál að stríða. Þá er líklegt að þessi sparnaðaraðgerð muni, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki bera tilætlaðan árangur. Búast má við því að hún valdi auknu álagi á heilbrigðiskerfið sem nú þegar hefur þurft að takast á við mikinn niðurskurð. Á tímum sem þessum ber að gæta sérstaklega vel að geðheilbrigðismálum og fara afar varlega í niðurskurð á því sviði.

