Ung vinstri græn
Fréttasafn

Réttlæti fyrir flóttamenn!

Stjórn Ungra vinstri grænna ályktar um stefnu stjórnvalda gagnvart flóttamönnum

  • Stjórnarráðið

Stjórn Ungra vinstri grænna krefst þess að ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar taki upp mannúðlega stefnu í málefnum flóttamanna og hætti nú þegar að beita fyrir sig Dyflinarsáttmálanum í stað þess að taka fyrir mál þeirra flóttamanna sem hingað leita skjóls.  Í ljósi atburða dagsins sér stjórn Ungra vinstri grænna sig knúna til að ítreka þessa kröfu sína, en í dag var flóttamanni frá Íran vísað úr landi, án þess að kæra hans á þeirri ákvörðun hefði verið tekin fyrir.

Framganga ríkisstjórnarinnar í málefnum flóttamanna hefur valdið stjórn Ungra vinstri grænna gífurlegum vonbrigðum og telja Ung vinstri græn hið svokallaða dóms- og mannréttindamálaráðuneyti ekki hafa hafið feril sinn sem slíkt á trúverðugan hátt. 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica