Ung vinstri græn
Fréttasafn

Björgum garðyrkjunni!

Stjórn UVG ályktar um alvarlega stöðu garðyrkjubænda

  • Merki ungra vinstri grænna

Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á íslensk stjórnvöld að bregðast strax við þeirri grafalvarlegu stöðu sem blasir við íslenskum garðyrkjubændum. Ljóst er að verði ekkert að gert verða margir garðyrkjubændur að hætta starfsemi sinni með tilheyrandi afleiðingum.

Það er allra hagur að íslensk garðyrkja dafni sem best. Atvinnugreinin skapar fólki störf og þjóðarbúinu tekjur. Með því að framleiða okkar eigið grænmeti og blóm eflum við ekki einungis innlenda framleiðslu heldur stuðlum að því að iðnaðurinn sé mikið umhverfisvænni en ella, ekki síst vegna þess að flutningur á þessum vörum frá útlöndum veldur mikilli mengun. Þá er afar brýnt að matvælaöryggi þjóðarinnar sé tryggt þannig að við séum sem minnst háð öðrum þjóðum hvað framleiðslu á matvælum varðar. Það sýndi sig við hrun fjármálakerfisins síðastliðið haust að hættan á því að matvælaskortur verði í landinu við sérstakar aðstæður líkt og þá voru uppi er raunveruleg. Síðast en ekki síst er hægt að bjóða neytendum uppá ferskari matjurtir séu þær framleiddar hér á landi.

Stjórn Ungra vinstri grænna telur afar brýnt að lækka verð á raforku til garðyrkjubænda. Það er löngu orðið tímabært að breyta forgangsröðun í orkumálum þjóðarinnar. Í stað þess að ráðstafa nær allri raforku sem hér er unnin til stóriðju og veita álverum mikinn afslátt af raforkuverði verður að líta til fjölbreyttari þátta við atvinnuuppbyggingu og hafa sjónarmið sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica