Ráðuneyti standi undir nafni
Stórn UVG ályktar um málefni flóttamanna á Íslandi
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Útlendingastofnunar og Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra, frá 14, október síðastliðnum, þess efnis að vísa fjórum flóttamönnum úr landi og senda þá til Grikklands. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað bent á að aðstæður flóttamanna í Grikklandi séu skelfilegar.
Flóttamennirnir þrír frá Íran og Afganistan sem þegar hafa verið sendir til Grikklands fengu ekki faglega málsmeðferð. Sá fjórði, Afganinn Wali Safi, sem heldur sig í felum til þess að verða ekki sendur sömu leið, hefur lýst því yfir að skárra sé að lifa í felum en deyja og rotna í grískum útrýmingarbúðum. Hann hryllir við þeirri tilhugsun að vera rifinn burt frá unnustu sinni, stjúpbörnum, vinum og vandamönnum.
Það er með engu móti forsvaranlegt að flóttamenn sem hingað sækja í neyð vegna ofsókna sæti jafn ómannúðlegri meðferð og hér er um að ræða. Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum staðið sig afleitlega í málefnum flóttamanna og telur stjórn Ungra vinstri grænna það verkefni þeirrar félagshyggjustjórnar sem nú er við völd að móta aðra stefnu í þessum málaflokki en viðhafðist í stjórnartíð hægriflokka.
Þá skora Ung vinstri græn á Rögnu Árnadóttur að draga úrskurð sinn til baka og standa þannig undir nafni sem ráðherra mannréttindamála á Íslandi.

