Ung vinstri græn
Fréttasafn

Takk fyrir Kolla!

  • Kolbrún Halldórsdóttir

Ung vinstri græn þakka Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir frábært hugsjónastarf í þágu náttúrunnar, kvenfrelsis, félagslegs jafnréttis og friðar í þau 10 ár sem hún hefur setið á þingi.

Kolbrún er hugsjónakona og hefur verið mikill brautryðjandi í íslenskum stjórnmálum undanfarin tíu ár. Hún hefur alltaf látið hugsjónir sínar ráða för í málflutningi sínum og aldrei látið mótlætið buga sig, þó það hafi oft á tíðum verið gríðarlegt.

Ung vinstri græn munu sakna Kolbrúnar af Alþingi Íslendinga og vona að þeir sem á eftir henni koma muni taka heiðarleika hennar, kjark og baráttuanda sér til fyrirmyndar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica