Mannúð í málefnum hælisleitenda
Ung vinstri græn skora á Útlendingastofnun að endurskoða stefnu sína í málefnum flóttamanna og hælisleitenda, sem hingað til virðist einungis hafa falist í því að vísa flóttamönnum úr landi. Hreyfingin hvetur stofnunina til að taka mannúðlegri afstöðu og forgangsraða í þágu mannréttinda, frekar en að fela sig bakvið undarlega túlkun Dyflinnarsáttmálans. Dyflinnarsáttmálinn krefst ekki þess að við sendum fólk aftur til landsins sem það kom fyrst til í Evrópu og hann firrar okkur alls ekki undan þeirri ábyrgð að taka á réttlátan hátt á málum hælisleitenda. Reyndar er kveðið á að ef hælisleytandi sé í landi í 60 daga eða lengur beri það land að vinna úr umsókn hans.
Síðustu ár hefur Ísland hafnað nánast öllum flóttamönnum. Aðeins einn af sex hundruð hælisleitendum hefur fengið hæli. Nokkrir hafa fengið tímabundið landvistarleyfi, en aðeins ein manneskja hefur fengið hæli og full réttindi. Íslendingar hafa yfirleitt sent flóttamenn aftur til þess lands í Evrópu sem tók við þeim fyrst og er það oftar en ekki Grikkland. Dæmi eru um að flóttamenn óttist þær flóttamannabúðir sem við sendum þá í svo mikið að þeir fremji sjálfsmorð frekar en að fara þangað, enda eru aðstæður og meðferð flóttamanna óviðunandi samkvæmt skýrslu sem lögð var fyrir Evrópuþingið árið 2008.
Ung vinstri græn fagna framgöngu dómsmálaráðherra í málefnum hælisleitenda, sem að stöðvaði brottvikningu hælisleitenda til Grikklands um síðustu mánaðarmót og hefur skipað nefnd til að fara yfir lög og reglur um hælisleitendur. Hreyfingin bindur vonir við að tekin verði upp mannúðlegri stefna í málefnum flóttamanna og hælisleitenda og skorar á alla þá stjórnmálamenn sem að munu eiga sæti á þingi eftir kosningar í vor að beita sér fyrir mannréttindum hælisleitenda.
