Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ánægja með sumarannir

  • uvg-logo

Ung vinstri græn fagna skjótum viðbrögðum og vasklegri framgöngu menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur við kröfum námsmanna um sumarnám í háskólum. Ung vinstri græn hafa beitt sér fyrir sumarönnum í háskólum og telja það brýnt hagsmunamál að fólk geti stundað nám þegar aðstæður á atvinnumarkaði eru erfiðar, í stað þess að fólk mæli göturnar atvinnulaust. Það er því fagnaðarefni að ríkisstjórnin hafi ákveðið að veita Lánasjóði íslenskra námsmanna aukaframlag uppá 650 milljónir króna til þess að sjóðurinn geti lánað háskólanemum fyrir framfærslu ákveði þeir að stunda sumarnám.

Ung vinstri græn treysta því að allar ákvarðanir um sumarnám verði hingað til sem hér eftir teknar í góðu samstarfi við starfsfólk háskólanna.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica