Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ung vinstri græn vilja sumarannir

  • katrin-jakobsdottir-frett

Ung vinstri græn hvetja menntamálaráðherra til að beita sér fyrir því að sem flestir háskólar bjóði upp á sumarannir á komandi sumri. Einnig leggja Ung vinstri græn til að skólagjöld fyrir sumarnám á framhaldsskólastigi verði afnumin.

Ljóst er að vegna efnahagsþrenginga og atvinnuleysis verður erfitt fyrir skólafólk að fá vinnu í sumar. Ung vinstri græn benda á að það er hagkvæmara að bjóða háskólanemum upp á námslán sem þeir svo endurgreiða að loknu námi, en að borga út atvinnuleysisbætur til þeirra fjölmörgu sem ekki fá vinnu. Í stað þess að sætta okkur við vonleysi og atvinnuleysi getum við stuðlað að upplýstu þekkingarsamfélagi með því að styðja við þá sem vilja afla sér menntunar. Ung vinstri græn vilja leggja áherslu á nýsköpun og rannsóknir sem skapa fjölbreytt störf til lengri og skemmri tíma.

Til þess að hægt verði að koma á sumarönnum við háskóla landsins er ljóst að efla þarf lánasjóð íslenskra námsmanna svo sjóðurinn hafi tök á að lána þeim sem kjósa að stunda nám í sumar. Ung vinstri græn benda á að allir flokkar hafa tekið vel í hugmyndir um sumarannir og því ætti Alþingi að leggjast á sveif með menntamálaráðherra í þessu máli og standa vörð um hag stúdenta og öflugt íslenskt menntakerfi á þessum erfiðu tímum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica