Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ríkisstjórnin hverfi frá stóriðjustefnu

  • Stjórnarráðið

Ung vinstri græn krefjast þess að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar beiti sér af fullum þunga fyrir því að horfið verði frá stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna tafarlaust. Sú stefna hefur nú þegar valdið íslenskri náttúru miklum skaða sem og efnahag þjóðarinnar.

Ung vinstri græn fagna því að Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra skuli beita sér gegn álveri á Bakka og skora á hana að gera slíkt hið sama varðandi álver í Helguvík.

Ung vinstri græn telja áform um álver í Helguvík og á Bakka vera leyfar af gjaldþrota stefnu Sjálfstæðisflokksins og blekkingarleik sem þarf afhjúpa strax. Það liggur fyrir að íslenskt orkufyrirtæki hafa ekki næga orku tiltæka til þess knýja þessi álver né heldur geta þau fjármagnað virkjun hennar. Þá er áliðnaður í mikilli niðursveiflu og heimsmarkaðverð á áli í frjálsu falli. Álframleiðendur hafa því neyðst til þess að draga úr framleiðslu, segja upp fólki, fresta fjárfestingum og jafnvel loka verksmiðjum.

Ung vinstri græn telja engar forsendur fyrir frekari álversuppbyggingu hér á landi á næstu árum, meðan álverum er lokað og fjöldauppsagnir í greininni eru víða um heim. Þegar stefnir í mikið atvinnuleysi hlýtur ný ríkisstjórn að taka ábyrgð, hverfa endanlega frá gjaldþrota stóriðjustefnu og leita raunhæfari og umhverfisvænni leiða í atvinnuuppbyggingu.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica