Ályktun UVGA um framhaldsskólafrumvarp
Ung Vinstri-græn á Akureyri samþykktu eftirfarandi ályktun um frumvarp til laga um framhaldsskóla á fundi UVGA á Kaffi Karólínu þriðjudaginn 8. apríl 2008:
„Ung Vinstri-græn á Akureyri harma vinnubrögð menntamálaráðherra við gerð frumvarps til laga um framhaldsskóla. Það er mat Ungra Vinstri-grænna á Akureyri að menntamálaráðuneytinu beri að kynna slíkt frumvarp nemendum framhaldsskóla og hafa samráð við þá um innihald þess. Ung Vinstri-græn á Akureyri krefjast þess að frumvarpið verði kynnt og útskýrt fyrir framhaldsskólanemum áður en það fær frekari meðhöndlun á Alþingi.
Auk þess telja Ung Vinstri-græn á Akureyri ýmis atriði frumvarpsins óljós og jafnvel þversagnakennd. Til að mynda segir í athugasemd við 32. grein frumvarpsins að það sé „í reynd tryggð fræðsluskylda fyrir ólögráða nemendur“, en ekkert í frumvarpinu segir að nám til stúdentsprófs þurfi að vera lengra en eitt skólaár.“
