Ung vinstri græn
Fréttasafn

Stefnu flokksins ekki fylgt

Stjórn Ungra vinstri grænna hefur ályktað:

Hafa skal stefnu flokksins í huga

Ung vinstri græn lýsa yfir óánægju með framgöngu þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þegar frumvörp um heildarlög grunnskóla og leikskóla voru afgreidd í annarri umræðu á Alþingi á mánudag. Þegar greidd voru atkvæði um tillögu sem fól í sér að ákvæði um að starfshættir grunnskóla og leikskóla skuli mótaðir af “kristinni arfleifð íslenskrar menningar” yrði bætt við markmið laganna greiddu fimm þingmenn atkvæði með því að ákvæðið færi inn í grunnskólalögin og sex að það færi inn í leikskólalögin. Hinir þrír þingmenn flokksins sem voru viðstaddir sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

Ung vinstri græn telja að þarmeð hafi þingmennirnir gengið gegn landsfundarályktun flokksins um trúfrelsi frá árinu 2007. Í henni segir meðal annars: „Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, haldinn að Grand Hótel 23-25. febrúar, ályktar að fullt trúfrelsi og jöfn staða trúar- og lífsskoðunarfélaga sé grundvallaratriði. Öll löggjöf og stjórnsýsla þarf að miðast við það. Landsfundurinn telur mikilvægt að í skólum sé gætt fyllsta hlutleysis gagnvart trúarbrögðum og afstöðu til trúar“.

Ung vinstri græn telja að ákvæðið um kristna arfleið íslenskrar menningar þjóni þeim eina tilgangi að réttlæta og auka afskipti eins trúfélags, Þjóðkirkjunnar, af skólastarfi og að það sé aðför að hlutlausu starfi grunnskólanna. Ung vinstri græn vilja minna þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að flokkurinn kennir sig við jafnrétti. Það er því skylda þeirra að vinna störf sín með hliðsjón af jafnréttisstefnu í öllum málaflokkum, þar með í trúmálum, og stuðla með verkum sínum að börn í grunnskólum fái faglega og hlutlausa kennslu í öllum greinum óháð trú.

Ung vinstri græn skora í þingmenn Vinstrihrefyingarinnar - græns framboðs að fylgja stefnu flokksins þegar lagagfrumvarpið kemur til þriðju umræðu á Alþingi.

Árétting
Stjórn Ungra vinstri grænna vill að gefnu tilefni árétta að hún er í meginatriðum ánægð með störf þingflokks Vinstri grænna. Það er fyrst og fremst í þessu afmarkaða máli þar sem Ung vinstri græn eru óánægð með framgöngu þingmanna Vinstri grænna.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica