Ung vinstri græn
Fréttasafn

Breytingartillaga í anda trúfrelsis frá VG

Ung vinstri græn lýsa yfir ánægju með framgöngu þingmanna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þegar frumvörp um heildarlög grunnskóla og leikskóla voru afgreidd í þriðju umræðu á Alþingi í gær, fimmtudaginn 29. maí 2008.

Þrír þingmenn flokksins lögðu fram eftirfarandi breytingartillögu: „Í námskrá og starfi grunnskóla skal enn fremur tekið mið af aukinni fjölbreytni hvað varðar menningarlegan og trúarlegan bakgrunn nemenda. Hvers kyns trúarleg innræting er óheimil. Fræðsla um trúarlega arfleifð íslenskrar menningar og um mismunandi trúarbrögð skal virða rétt manna til trúfrelsis og trúleysis, með það að markmiði að auka þekkingu, umburðarlyndi, skilning og virðingu milli ólíkra trúar- og menningarheima.“

Ung vinstri græn telja að slík viðbót við lögin hefði verið mikið heillaskref, sérstaklega í ljósi þess að nú þegar er búið að samþykkja breytingu á lögunum sem felur í sér ákvæði um að starfshættir grunnskóla og leikskóla skuli mótaðir af “kristinni arfleifð íslenskrar menningar”.

Ung vinstri græn lýsa vonbrigðum sínum með að þingheimur hafi ekki borið gæfu til að samþykkja fyrrgreinda breytingartillögu sem er hófsöm og í anda þess umburðarlyndis sem fjölmenningarleg þjóð þarf að tileinka sér. Það vekur satt að segja furðu að enginn þingmaður Samfylkingar né Sjálfstæðisflokks vilji una börnum þess að vera laus við trúarlega innrætingu og njóta trúfrelsis í menntun sinni.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica