Ung vinstri græn
Fréttasafn

Niðurskurður í hermálum - aukin þróunaraðstoð

Ung vinstri græn fagna endurskoðun á verkefnum utanríkisráðuneytisins og starfsemi sparnaðarnefndar í utanríkisráðuneytinu. Ung vinstri græn benda á að þau hafi fyrr í þessum mánuði lagt fram sparnaðaráætlun sem myndi gera ríkinu kleift að spara 14,6 milljarða kr. í fjárlögum næsta árs. Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir að Varnarmálastofnun verði lögð niður, hætt verði við loftrýmiseftirlit og heræfingar erlendra herja, auk þess sem Ísland segði sig úr NATO. Alls leggja UVG til að sparaðir verði tæpir 3,3 milljarðar í utanríkismálum Íslendinga.

Varnarmálastofnun, loftrýmiseftirlit og þátttaka í hernaðarbandalaginu NATO eru að mati UVG ekki til þess fallin að gæta öryggis okkar eins og best sést á atburðum síðustu vikna. Að Íslendingum steðja nú ógnir á borð við atvinnuleysi, fátækt og aukið heimilisofbeldi í kjölfar efnahagslegra þrenginga. Gegn slíkum ógnum er ekki hægt að berjast með her og vopnavaldi, heldur með að standa vörð um samfélagslegt öryggi og styðja við velferðarkerfið.

Ung vinstri græn leggjast hins vegar alfarið gegn hugmyndum um að draga úr framlögum til þróunaraðstoðar við íbúa fátækustu ríkja í heimi. Úr því að íslensk stjórnvöld uppfylltu aldrei lágmarksskilyrði Sameinuðu þjóðanna um að verja 0,7% af þjóðarframleiðslu til þróunaraðstoðar þegar uppgangur var í íslensku efnahagslífi, er það engin afsökun fyrir því að draga úr aðstoðinni nú þegar harðnar á dalnum. Þrátt fyrir efnahagsþrengingar hér á landi búum við þó við lífskjör sem íbúar þróunarlanda hafa aldrei fengið að kynnast.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica