Aðalfundur UVGA
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á Akureyri fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld. Félagið kaus nýja stjórn og er hún skipuð eftirtöldum aðilum:
Bjarni Þóroddsson - formaður
Bjarki Þórðarson - varaformaður
Sindri Rögnvaldsson - gjaldkeri
Sindri Geir Óskarsson - ritari
Þórunn Rögnvaldsdóttir - meðstjórnandi
Ragnar Logi Búason - varamaður
Félagið sendir auk þess frá sér eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur Ungra vinstri grænna á Akureyri, haldinn miðvikudaginn 22. október 2008, lýsir yfir vonbrigðum með þann glapræðislega launasamning sem gerður var við Finn Sveinbjörnsson, nýráðinn forstjóra Kaupþings. Þessi svimandi háu laun setja slæmt fordæmi og eru algjörlega úr takti við þá miklu endurskipulagningu sem rekstur íslensku bankanna þarf á að halda. Tími er kominn til að leggja niður þá geigvænlegu ofurlaunastefnu sem íslensku bankarnir hafa viðhaft undanfarin ár.“
