Ung vinstri græn
Fréttasafn

Sparnaðaráætlun UVG

Ung vinstri græn leggja áherslu á ábyrga fjármálastefnu og hvetja stjórnvöld til að spara í fjárlagagerð næsta árs. Í sérstakri sparnaðaráætlun Ungra vinstri grænna sem samþykkt var á landsfundi UVG um þarsíðustu helgi eru tillögur til stjórnvalda um sparnað uppá tæpa 15 milljarða íslenskra króna, sem fæst með því að skera niður ýmis fjárútlát sem eru annaðhvort óþörf eða beinlínis skaðleg að mati UVG. Með þessu myndi fjárlagahalli á fjárlögum næsta árs minnka um rúmlega 25%.

Meðal þeirra útgjaldaliða sem Ung vinstri græn horfa til í því sambandi eru Varnarmálastofnun, Ríkislögreglustjóri, Þjóðkirkjan og bruðl í ráðuneytunum sjálfum – þar á meðal laun ráðherra og starfskostnað ráðuneytanna. Einnig er lagt til að hætt verði við fjárútlát til fyrirhugaðrar Sjúkratryggingastofnunar, enda sé sá aukni einkarekstur sem henni er ætlað að sinna hvort sem er ekki til þess fallinn að spara ríkissjóði neina peninga, eins og dæmi frá öðrum löndum sýna. Þá leggja Ung vinstri græn til að ríkið hætti að innheimta sóknargjöld fyrir trúfélög og að skorið verði niður í samgönguverkefnum á höfuðborgarsvæðinu sem eiga að greiða veg frekari bílaumferðar í stað þess að efla almenningssamgöngur.

Hérna má sjá sparnaðartillögurnar

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica