Ung vinstri græn
Fréttasafn

Vel heppnaður landsfundur Ungra vinstri grænna

Landsfundur Ungra vinstri grænna fór fram á Akureyri um helgina. Fundinn sátu 40 ungliðar frá öllum landshornum sem tóku þátt líflegum og frjóum umræðum sem skiluðu sér í fjölda ályktanna, endurbættri stefnuyfirlýsingu og hugmyndum fyrir komandi starfsár.

Á fundinum var Steinunn Rögnvaldsdóttir kjörinn formaður nýrrar stjórnar í stað Auðar Lilju Erlingsdóttur sem gengt hefur því embætti undanfarin tvö starfsár en gaf ekki kost á sér áfram.

Fundurinn fór fram í skugga þeirrar óvissu og umbrota sem ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar og einkenndust umræður á fundinum mjög af þeirri staðreynd, sem og ályktanir fundarins. Meðal annars var ályktað um hrun heimskapítalismans og stöðuna í efnahagsmálum. Einnig samþykkti fundurinn að leggja fram sparnaðaráætlun sem felur í sér fyrir nokkurra tugmiljarða sparnað í óþörfum verkefnum ríkissjóðs. Áætlunin verður kynnt á næstu dögum.

Hrun heimskapitalismans og þjóðstjórn
Hér eru tvær ályktanir fundarins um stöðuna í efnahagsmálum og hrun heimskapítalismans. Fleiri ályktanir verða birtar á næstu dögum.

Ályktun um efnahagsmál
Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4.-5. október 2008, krefst þess að mynduð verði þjóðstjórn með aðkomu allrastjórnmálaflokka á Íslandi í ljósi þeirra efnahagsþrenginga sem nú standa yfir. Ríkisstjórnin undir forystu Geirs Hilmars Haarde er rúin trausti þjóðarinnar og því er þörf á nýjum forystumönnum í stjórnmálunum sem gætu endurvakið traust þjóðarinnar. Stjórnarherrar eru ekki þess umkomnir við núverandi aðstæður að hafna útréttri sáttahönd Steingríms J. Sigfússonar.

Ung vinstri græn fordæma stjórnvöld fyrir það andvaraleysi sem einkennt hefur efnahagsstjórnun landsins. Þrátt fyrir ítrekanir aðvaranir Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hagfræðinga og Seðlabanka Íslands hafa stjórnvöld brugðist skyldum sínum og með aðgerðaleysi sínu orðið til þess að íslenskt efnahagslíf er nú í áður óþekktri niðursveiflu sem ekki sér fyrir endann á. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er í raun og veru aðgerð til þess fallin að meginþungi vandans lendir á heimilum í landinu í stað þess að lenda á þeim sem bera ábyrgð á ástandinu.

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur undanfarin misseri ítrekað bent á að áframhaldandi hömlulaus neysluhyggja, samfara gríðarlegum stóriðjuframkvæmdum og síðast en ekki síst skattalækkunum sem helst gagnast tekjuhæstu hópum samfélagsins, myndu verða til þess að óðaverðbólga skapaðist hérlendis, sem raunin hefur orðið

Hrun heimskapítalismans
Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4.-5. október 2008, harmar að hrun hins óhefta og ómannúðlega heimskapítalisma skuli nú bitna á þeim sem síst skyldi, eins og útlit er fyrir. Ung vinstri græn minna hins vegar á að fjármálakreppur á við þá sem nú á sér stað eru órjúfanlegur þáttur í þeim kreddukapítalisma sem tekur hugmyndafræðilegar kreddur frjálshyggjunnar fram yfir staðreyndir og klassísk manngildi. Ung vinstri græn telja einsýnt að dagar þessa óhefta heimskapítalisma séu senn taldir. Líkt og við fall Berlínarmúrsins árið 1989, sem markaði upphafið að hruni sovétkommúnismans, er annað þjóðfélagsskipulag nú að hrynja til grunna. Ekki er seinna vænna að stjórnvöld, félagasamtök og almenningur hefji strax að vinda ofan af þessu þjóðfélagsskipulagi, sem leitt hefur til gríðarlegs ójöfnuðar og umhverfisslysa um allan heim.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica