Ung vinstri græn
Fréttasafn

Nýtt félag Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu

  • Kristján Möller

Aðalfundur Ungra vinstri grænna í Reykjavík var haldinn síðastliðinn laugardag, 27. september 2008.

Á fundinum var ákveðið að breyta nafni félagsins í Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu og sameina félög í nágrannasveitafélögum svæðisfélagi Ungra vinstri grænna í Reykjavík. Nú eiga allir félagar í Vinstri grænum sem eru 30 ára og yngri og búa í Reykjavíkurkjördæmunum auk Suðvesturkjördæmis aðild að félaginu en áður áttu aðeins félagar í Reykjavík aðild. Stjórnarmeðlimum var einnig fjölgað úr fimm í sjö en varamenn verða tveir talsins eins og áður. Kosin í stjórn voru: Brynja Björg Halldórsdóttir formaður, Ísleifur Egill Hjaltason, Sunneva Ása Weisshappel, Olga Jenný Gunnarsdóttir, Þrúður Helgadóttir, Claudia Overesch, Ólafur Arason, Snærós Sindradóttir og Helgi Hrafn Ólafsson.

Á fundinum voru samþykktar ályktanir um nektardansstaði, heimgreiðslur, umhverfisvænan ferðamáta, meðhöndlun sorps og úrræði fyrir heimilislaust fólk. Ályktanirnar eru svo:

1. Ályktun um nektardansstaði

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn þann 27. september 2008, skorar á Alþingi að breyta lögum er varða nektardansstaði þannig að hægt verði koma veg fyrir starfsemi þeirra í þeim sveitafélögum þar sem eindreginn vilji yfirvalda er til slíks.

Nektardansstaðir eru meinsemd í öllum samfélögum. Þeir eru gróðrastía neðanjarðarstarfsemi líkt og vændis og mansals. Þá gengur starsemi þeirra út á að niðurlægja bæði kyn og hlutgera konur, sem vinnur gegn því að jöfn staða kynjana náist í samfélaginu.

2 . Ályktun um heimgreiðslur

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn þann 27. september 2008, harmar metnaðleysi meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur í leiksskólamálum sem endurspeglast í ákvörðun þeirra um að hefja heimgreiðslur til foreldra barna á biðlista eftir leikskólaplássi. Biðin eftir leikskólaplássi er afleiðing fyrrnefnds metnaðarleysis auk manneklu á leikskólunum sem orsakast  af starfskjörum og launum sem eru vart boðleg fyrir jafn mikilvægt starf og um ræðir. Þessi vandi verður ekki leystur með heimagreiðslum, allra síst greiðslum sem eru svo lágar að þær koma á engann hátt í stað tækifæris foreldra að komast aftur út á vinnumarkaðinn.

Reynsla nágrannaþjóða okkar af heimgreiðslum hefur sýnt að þær ýta undir gamaldags hlutverkaskiptingu kynjanna, draga úr atvinnuþáttöku kvenna og hafa sérlega slæm áhrif á innflytjendur. Hlutfallslega fleiri konur af erlendum uppruna þiggja heimgreiðslur, þó þær dugi ekki fyrir framfærslu en þetta kemur gríðarlega niður á aðlögun barna þeirra.

Borgarstjórn ætti frekar að einbeita sér að rót vandans með því að fjölga leiksskólaplássum og leysa manneklu á leikskólum með betri launum og vinnuaðstæðum. Jafnframt ætti að lengja fæðingarorlof beggja foreldra eins og ríkisstjórnarsáttmáli kveður á um.

3. Ályktun um umhverfisvæna ferðamáta

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn þann 27. september 2008, vill að það verði  raunverulegur valkostur kosti að eiga sér líf án einkabíls. Til þess að svo megi verða þarf að efla þá umhverfisvænu ferðamáta sem til eru og vinna að þróun frekari valkosta, eins og t.d. léttlestarkerfis og rafmagnsbíla. Stórbæta þarf almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem og landsvísu, bæði hvað varðar aðgengi og tíðni ferða. Þá skal stefna að því að gera almenningssamgöngur gjaldfrjálsar fyrir alla. Skorað  er á yfirvöld að taka virkan þátt í því að stuðla að því.

Ríkisstjórninni ber að auka aðgengi hjólreiðafólks í umferðinni. Leggja skal sérstaka áherslu hjólreiðastíga meðfram öllum aðalgötum  á  höfuðborgarsvæðinu. Þá þarf að tryggja aðgengi og umferð um hjólreiðaastíga allt árið kring með því að ryðja þá og hita  á veturna, þar sem þörf krefur, eins og aðrar götur borgarinnar. Fyrir utan ofangreind  skylduverkefni er æskilegt að gripið verði til  einstakra  hvatningaraðgerða sem auðvelda íbúum að lifa í sátt við umhverfi og náttúru. Til að mynda mætti íhuga stofnun sérstaks umhverfissjóðs sem styrki m.a. hjólakaup þeirra sem eiga ekki bíl eða nota hann lítið. Efla skal fræðslu um umhverfisvæna ferðamáta á öllum skólastigum, t.d. í formi hjólanámskeiða fyrir yngstu nemendur sem og úthlutun hjólahjálma.

4. Ályktun um meðhöndlun sorps

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn þann 27. september 2008,  vill að  yfirvöld geri íbúum það kleyft að endurvinna og flokka sorp . Til þess að svo megi verð þarf að koma upp flokkunaraðstöðu vítt og breytt um höfuðborgarsvæðið svo fólk  þurfi ekki lengur að keyra  sorp í endurvinnslu. Stefnt skal að því að fólki verði  gert kleyft að skila drykkjarílátum í öllum stórum matvöruverslunum landsins eins og tíðkast á  hinum Norðurlöndunum. Auk sérstakrar endurvinnsluaðstöðu fyrir pappír, pappa og gler skal koma upp grænni tunnu á öllum heimilum ætlaðri lífrænum úrgangi.

Þá verður ríkisstjórnin að leggja sitt af mörkum  til að koma í veg fyrir óhóflega sorpmyndun. Íhuga á upptöku  umhverfisskatts fyrir sérstaklega umbúðaríkar vörur.

5. Ályktun um úrræði fyrir heimilislaust fólk

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu, haldinn þann 27. september 2008, skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að hafa gistiskýlið við Þingholtsstræti og Konukot opið allan sólarhringinn. Aðalfundurinn skorar einnig á borgarstjórn og hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að koma á fót nauðsynlegum úrræðum sem taka við þegar gestir hafa ílengst í skýlunum lengur en nokkra daga í senn. Neyðarskýlum er ekki ætlað það hlutverk að vera framtíðarheimili neins.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica