Ung vinstri græn
Fréttasafn

Stofnuð verði jafnaðarmannahreyfing innan Samfylkingarinnar

Í ljósi nýjustu frétta af afstöðu þingmanna Samfylkingarinnar til frumvarps um Sjúkratryggingarstofnun og einkavæðingar í heilbrigðiskerfinu hvetja Ung vinstri græn til þess að stofnuð verði jafnaðarmannahreyfing innan Samfylkingarinnar sem starfi á sama grundvelli og Kvennahreyfing Samfylkingarinnar og Umhverfishreyfing Samfylkingarinnar, Græna netið. Augljóst er að líkt og í umhverfis- og kvenfrelsismálum þarf að stofna sérstaka deild fyrir þann minnihlutahóp innan Samfylkingarinnar sem trúir á jöfnuð í samfélaginu og þrífst enn í flokknum.

Ung vinstri græn hafa fullan skilning á því að erfitt getur verið að halda fram sjónarmiðum jafnaðar í flokki þar sem þau eru augljóslega lítils metin. Eins og svo oft skiptir samtakamátturinn mestu máli og sameinaðir geta jafnaðarmenn í Samfylkingunni, ef einhverjir eru, vonandi sveigt flokkinn af núverandi leið sinni. Takist það ekki hvetja Ung vinstri græn til þess að hreyfingin gangi til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, líkt og aðrir þeir sem berjast fyrir félagslegu réttlæti.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica