Ung vinstri græn
Fréttasafn

Heimagreiðslur leysa engan vanda

Stjórn Ungra vinstri grænna í Reykjavík hefur ályktað:

Heimagreiðslur leysa engan vanda

Ung vinstri græn í Reykjavík harma ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur um að hefja heimgreiðslur til foreldra barna á biðlista eftir leikskólaplássi. Biðin eftir leikskólaplássi stafar af manneklu á leikskólum vegna bágra launa. Borgarvöld leysa engan vanda með heimagreiðslum sem eru svo lágar að þær vega engan veginn upp á móti því vinnutapi sem hlýst.

Í Noregi er tíu ára reynsla af heimagreiðslum og hafa þær gefið slæma raun. Þær urðu til þess að draga úr atvinnuþáttöku kvenna auk þess sem börn innflytjenda fara á mis við þann þroska og tungumálakunnáttu sem þau myndu fá á leikskóla þar sem þau væru innan um önnur börn. Einnig hafa margar innflytjendakonur orðið einangraðar inni á heimilinu. Núverandi ríkisstjórn Noregs er á móti greiðslunum en getur ekki afnumið þær eins og sakir standa vegna þess að dagvistunarúrræði eru ekki fyrir hendi en þær væru eflaust fyrir hendi ef greiðslunum hefði ekki verið komið á sínum tíma. Heimgreiðslurnar hafa þannig skapað vítahring sem erfitt verður að brjóta.

Hugmyndir um heimagreiðslur eru barns síns tíma og arfleið gamallar hugsunar. Reynslan hefur sýnt að það er oftast konan sem fær það hlutskipti að sitja eftir heima en slíkt viðheldur launamun kynjanna og öðru kynbundnu óréttlæti á vinnumarkaði. Heimagreiðslur bitna einnig á innflytjendum.

Borgarstjórn ætti frekar að einbeita sér að rót vandans og leysa manneklu á leikskólum með betri launum og vinnuaðstæðum, í stað þess að breiða yfir vandann með heimagreiðslum. Jafnframt ætti að lengja fæðingarorlof beggja foreldra eins og ríkisstjórnarsáttmáli kveður á um.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica