Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ungir jafnaðarmenn segi sig úr Samfylkingunni

Í ljósi nýjustu frétta af því að ráðherrar Samfylkingarinnar hafi tekið virkan þátt í uppbyggingu frekari virkjana- og álversframkvæmda hvetja Ung vinstri græn ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar, Unga jafnaðarmenn, til þess að endurskoði val sitt á flokki.

 

Með nýjustu undirritun viljayfirlýsingar álvers á Bakka og skóflustungu í Helguvík, þar sem ráðherrar Samfylkingarinnar voru fremstir í flokki, eru loforð flokksins um „Fagurt Ísland“,  endanlega svikin. Samfylkingin lofaði fyrir kosningar að slá „ákvörðunum um frekari stóriðjuframkvæmdir á frest þangað til fyrir liggur nauðsynleg heildarsýn yfir verðmæt náttúrusvæði Íslands og verndun þeirra hefur verið tryggð.“ Í ljósi nýjustu frétta er orðið ljóst að Ungum jafnaðarmönnum, sem lengi hafa lýst yfir andstöðu sinni við þessar framkvæmdir er ekki lengur vært í sínum flokki.

 

Ung vinstri græn benda jafnframt á að til er einn flokkur sem barist hefur fyrir náttúruverndarsjónarmiðum alla sína tíð, engin loforð svikið og sem hefur haft sömu stefnu á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Sá flokkur heitir Vinstrihreyfingin – grænt framboð og tæki þeim umhverfisverndarsinnum sem enn eru meðlimir í Samfylkingunni opnum örmum, enda er ljóst að ráðherrar Samfylkingarinnar hlusta í engu á sjónarmið náttúruverndarsinna í flokknum. Ekki veitir heldur af fleiri liðsmönnum í náttúruverndarbaráttuna nú þegar ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins er komin í álversgagnsókn jafnt á suðvesturhorni sem norðausturhorni landsins.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica