Ung vinstri græn
Fréttasafn

Tvær ályktanir frá UVG á Suðurlandi

Ung vinstri-græn á Suðurlandi hafa sent frá sér tvær ályktanir:

Hættum við Bitruvirkjun

Ung Vinstri græn á Suðurlandi, skora á Orkukveitu Reykjavíkur og borgarstjórn Reykjavíkur að hætta við áform um Bitruvirkjun á Ölkelduhálsi. Þetta svæði er mikil náttúruperla og verðmætt útivistarsvæði. Má um margt líkja því að náttúrufegurð við Landmannalaugar, sem engum heilvita manni dettur í hug að virkja.

Við minnum á að ekki er síst mikilvægt að vernda náttúru í nágrenni þéttbýlis. Það er hluti af lífsgæðum að geta notið ósnortinnar náttúru og gæta þess sem næst okkur er. Nóg er af jarðvarmaorku sem hægt er að sækja án mikilla náttúrspjalla og nær að snú sér þangað fyrst.

------

Vörumst vítin við Ingólfsfjall

Ung Vinstri græn á Suðurlandi skora á bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfus, að læra af mistökum sínum við afgreiðslu á efnistöku úr Ingólfsfjalli, en festast ekki í forherðingu, eins og óttast má af orðum bæjarstjóra þeirra, Ólafs Áka Ragnarssonar, á forsíðu Fréttablaðsins 9. nóvember: "Svo hefur sveitarfélagið úrslitavald að lokum og getur tekið aðra ákvörðun en Skipulagsstofnun, eins og við gerðum með námuna í Ingólfsfjalli," segir Ólafur.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica