Ung vinstri græn
Fréttasafn

Vopnin kvödd


Stjórn Ungra vinstri-grænna hefur ályktað vegna „liðsstyrkingar“ vopna-framleiðandans BAE systems hér á landi.
-----
Vopnin kvödd

Ung vinstri-græn lýsa fulltrúa BAE Systems, eins stærsta stríðstólaframleiðanda heims, óvelkomnna hingað til landsins og biðja þá vinsamlegast að hverfa af landi brott og leggja niður iðju sína.

Afkoma BAE og starfsmanna þess ræðst af eftirspurn eftir manndrápum í heiminum enda framleiðir fyrirtækið tól sem eru sérhönnuð til þess að drepa fólk. Með því að framleiða slík tól stuðla BAE og aðrir hergagnaframleiðendur að manndrápum í heiminum, ekki hvað síst á óbreyttum borgurum. Ung vinstri-græn telja því starfsemi slíkra fyrirtækja óréttlætanlega með öllu.

Ung vinstri-græn hvetja lögregluyfirvöld til að fylgjast vel með og rannsaka hvort einhver lögbrot eigi sér stað á ráðstefnunni sem nú stendur yfir. Þá eru allir, sérstaklega eigendur og starfsfólk Hótel Hilton Nordica, hvattir gera sitt til þess að koma í veg fyrir að forsvarsmenn BAE geti stundað þá iðju sína að þróa og selja vopn sem ætluð eru til manndrápa víða um heim.

Ung vinstri-græn minna á að nýlega var afhjúpuð friðarsúla í Viðey og að í því samhengi var rætt um að Reykjavík yrði friðarhöfuðborg heimsins. Á meðan stríðstólaframleiðendur funda óáreittir í Reykjavík er ljóst að allt slíkt tal er hræsni. Ung vinstri-græn telja að réttast væri að slökkva á friðarsúlunni, að minnsta kosti á meðan stríðstólaframleiðsla er skipulögð í borginni.
----
Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður Ungra vinstri-grænna um ályktunina:

„Við viljum fyrst og fremst að allir vopnaframleiðendur leggi upp laupana og veiti hugviti sínu og fjármunum í eitthvað uppbyggilegt. Vopn geta aldrei verið uppbyggileg.“

„Ef einhver alvara er í því að Íslendingar verði boðberar friðar í heiminum, og Reykjavík þá einhverskonar friðarhöfuðborg, þá sættum við okkur ekki við að hergagnaframleiðendur geti unnið störf sín óáreittir hér á landi.“

„Fyrirtæki sem byggja tilveru sína á því að hanna, þróa og framleiða tæki sem eru sérstaklega ætluð til að drepa fólk eru óverjanleg. Þá hefur þetta fyrirtæki einnig grætt á tá og fingri á því að selja vopn til einræðisherra í stríðshrjáðum og fátækum ríkjum“

„Það er með ólíkindum að þeim hafi tekist leyna ferðum sínum og að læða sér inn í landið án þess að nokkur hafi tekið eftir því. Það breytir þó engu því þau eru alveg jafn óvelkomin þrátt fyrir það.“

„Ég minni lögregluna á að fylgjast sérstaklega með fulltrúum þessa fyrirtækis. Fyrirtækið hefur frá upphafi verið tengt allskyns spillingu og hefur óhikað beitt mútum og nýtt vændi til að ná markmiðum sínum. Þá finnst mér starfsemi fyrirtækisins vega að grunngildum íslensks samfélags.“

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica