Ung vinstri græn
Fréttasafn

Kynhneigð kemur ríkinu ekki við

Stjórn Ungra vinstri-grænna hefur samþykkt eftirfarandi ályktun:

Kynhneigð kemur ríkinu ekki við
Ung vinstri-græn telja það ólíðandi að íslensk lög skipti fólki í hópa eftir kynhneigð, enda er kynhneigð einkamál hvers og eins. Því er fáránlegt að tvö hjúskaparlög séu í gildi á Íslandi, önnur fyrir „gagnkynhneigða“ og hin fyrir „samkynheigða“.

Ung vinstri-græn lýsa yfir stuðningi sínum við frumvarp um breytingingu á hjúskaparlögum sem Kolbrún Halldórsdóttir og fleiri hafa lagt fram á Alþingi. Samkvæmt frumvarpinu gilda ein hjúskaparlög fyrir okkur öll, óháð því með hverjum við viljum eyða ævinni.

Stjórn UVG, 26. október 2007

Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður Ungra vinstri-grænna um ályktunina:
„Þetta snýst um grundvallarsýn á samfélagið. Við eigum aldrei að skipta fólki hópa því þannig erum við aðeins að skapa forsendur fyrir mismunun og kúgun. Kynhneigð er einkamál hvers og eins og því er fáránlegt að í gildi séu tvö alveg eins lög um hjúskap, önnur fyrir fólk af gagnstæðu kyni en hin fyrir fólk af sama kyni,“

„Verði frumvarpið samþykkt verður öll mismunun vegna kynhneigðar horfin úr íslenkum lögum. Það yrði stór áfangi. Við megum samt ekki gleyma því að þrátt fyrir að mismunun sé eytt úr lögum þá er ekki tryggt að svo verði raunin úti í samfélaginu. Það má því ekki slaka á þótt að stórum áföngum sé náð,“ bætir hún við.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica