Ung vinstri græn
Fréttasafn

Til nýrrar ríkisstjórnar

Um leið og Ung vinstri-græn óska nýrri ríkisstjórn velfarnaðar viljum við skora á hana að tæma eftirfarandi verkefnalista hið fyrsta:
Aðskilja ríki og kirkju
Afnema vatnalögin
Biðja Íraka afsökunar á stuðningi Íslands við innrásina í land þeirra og bæta fyrir þau mistök með aðstoð við þá sem eiga um sárt að binda vegna stríðsins
Gera kaup á vændi ólögleg og refsiverð
Grípa strax til róttækra aðgerða til þess að jafna launamun kynjanna
Hefja endurskoðun á kostnaði vegna yfirbyggingar í opinbera kerfinu með sérstaka áherslu á utanríkissráðuneytið
Segja Ísland úr NATO
Segja skilið við stóriðjustefnuna og styðja við fjölbreytt atvinnulíf um land allt
Skipta öllum ráðherrabílunum út fyrir aðra umhverfisvænni
Tryggja að hver einstaklingur geti stundað það nám sem áhugi hans, hæfileikar og geta liggja til óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum
Tryggja samkynhneigðum sömu réttindi og öllum öðrum
Uppfylla samþykkt Sameinuðu þjóðanna frá 1971 um framlög ríkja til þróunaraðstoðar
Útrýma fáttækt
Útrýma heimilisleysi
Viðurkenna heimastjórn Palestínu
Viðurkenna táknmál sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra

Þessi verkefnalisti er á engan hátt tæmandi. Ung vinstri-græn gera sér grein fyrir því að ný ríkisstjórn þarf tíma til að fóta sig, því er listinn ekki lengri að sinni þó vissulega sé af nógu að taka. Nýjum verkefnum verður bætt við eftir því sem verkefni á listanum eru uppfyllt.

Ung vinstri-græn bjóða fram ráðgjöf sína við framkvæmd þessara verkefna telji hin nýja ríkisstjórn sig ekki færa til þess að framkvæma þau.

Stjórn UVG

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica