Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun vegna prestastefnu Þjóðkirkjunnar

Stjórn Ungra Vinstri-grænna harmar þá niðurstöðu sem prestastefna Þjóðkirkjunnar, er haldin var á Húsavík í apríl 2007, hefur komist að er varðar giftingar samkynhneigðra. Með því að neita að gefa saman samkynhneigða einstaklinga brýtur Þjóðkirkjan gegn jafnréttisákvæðum stjórnarskrár íslenska lýðveldisins og fordæmir óbeint þá Íslendinga sem eru samkynhneigðir. Meðan prestar fá greidd laun frá ríkinu eru þeir eins og gefur að skilja ríkisstarfsmenn og það að þeir geti neitað fólki um opinbera þjónustu á grundvelli kynhneigðar er ólíðandi.

Það er von Ungra vinstri-grænna að Alþingi komi í veg fyrir þessa grófu mismunun og heimili sem fyrst trúfélögum að gefa saman samkynhneigða.

Ung Vinstri-græn líta á niðurstöðu prestastefnunnar sem enn eina vísbendingu um að aðskilja beri ríki og kirkju þar sem Þjóðkirkjan virðist hvort tveggja vera í andstöðu við fólkið í landinu sem og stjórnarskrá þess.

Stjórn UVG

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica