Ung vinstri-græn í Reykjavík álykta
Stjórn Ungra vinstri-grænna í Reykjavík hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun:
Reykjavík, 29. apríl 2007
Borgarstjórn Reykjavíkur kynnti nýlega aðgerðaráætlun undir nafninu ?græn skref? til þess að gera borgina umhverfisvænni, og kynnti af því tilefni aðgerðaráætlun undir sama nafni. Stjórn Ungra Vinstri grænna í Reykjavík telur áætlunina fela í sér marga góða hluti og sem slík sé aðgerðaráætlunin ágætis skref í rétta átt sem ber að fagna.
Eitt af markmiðum áætlunarinnar er að auka þjónustu strætó, m.a. með því að gefa öllum biðstöðvum nafn og gefa námsmönnum frítt í strætó. Það er sérstakt ánægjuefni að meirihluti Sjálfsstæðisflokks í borgarstjórn skuli hafa áttað sig á mikilvægi almenningssamgangna í borginni. Það skýtur aftur á móti skökku við að nú, einungis tveim vikum eftir að ?grænu skrefin? voru kynnt, skuli Umhverfisráð Reykjavíkurborgar ákveða að skerða þjónustu strætó umtalsvert, m.a. með því fækka ferðum frá og með 1. júní næstkomandi.
Ákvörðun Umhverfisráðs vekur upp spurningar hjá stjórn Ungra vinstri-grænna í Reykjavík um það hvort meirihluti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn skilji hvað felist í hugtakinu ?græn skref?. Ákvörðun Umhverfisráðs um skerðingu á þjónustu Strætó er að mati stjórnar UVGR risastórt grænt skref aftur á bak og er í raun enn eitt græna skrefið sem meirihluti Sjálfstæðisflokksins hefur tekið aftur á bak síðan hann komst til valda. Þjónusta Strætó hefur enda farið hríðvesnandi síðastliðið ár.
Stjórn UVGR krefst þess að þjónustan verði aukin og strætó gerður að raunhæfum umhverfisvænum valkosti þegar ferðast er á milli staða innan borgarmarkanna. Það er til lítils að gefa frítt í strætó sem aldrei kemur.
Stjórn UVG-R
