Á réttri leið
Síðastliðinn laugardag höfnuðu Hafnfirðingar deiliskipulagstillögu sem hefði gert Alcan kleift að stækka álver sitt í Straumsvík í 460.000 tonna ársframleiðslu.
Stjórn Ungra vinstri-grænna fagnar niðurstöðu íbúakosninganna og þessum mikilvæga áfanga í baráttunni fyrir skynsamlegri náttúrunýtingu og náttúruvernd, stöðugleika í efnahagskerfinu og fjölbreytni í atvinnumálum.
Stóriðjukapphlaupi stjórnvalda er þó langt því frá lokið þó einn keppandinn hafi helst úr lestinni. Nú þegar er augunum beint að Helguvík, sem þýðir að áform um virkjun í Neðri-Þjórsá eru enn inní myndinni. Eins og það sé ekki nóg eru nú þegar uppi áform um að reisa álver á Húsavík og í Þorlákshöfn með tilheyrandi náttúruspjöllum.
Ung vinstri-græn hafna þessum árásum á náttúru Íslands og einhæfri atvinnuuppbyggingu stjórnvalda, en leggja áherslu á að fjölbreytta nýsköpun, hugvit og skynsamlega nýtingu auðlinda, svo að komandi kynslóðir fái einnig notið þeirra. Stjórn Ungra vinstri-grænna óskar Hafnfirðingum hjartanlega til hamingju með vel heppnaðar kosningar og bjarta græna framtíð!
Stjórn UVG
