Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun Ungra vinstri-grænna í tilefni af fyrirhugaðri klámráðstefnu í Reykjavík

Vegna frétta þess efnis að þing framleiðenda klámefnis fyrir netmiðla verði haldið á Íslandi 7-11. mars næstkomandi vill stjórn Ungra vinstri-grænna koma á framfæri andúð sinni á klámiðnaðinum. Von okkar er sú að almenningur á Íslandi gefi um það skýr skilaboð með öllum tiltækum ráðum að klám skuli ekki liðið enda er klám ólöglegt á Íslandi (skv. 210 gr. hegningarlaga). Sömuleiðis krefjumst við þess að gestir þingsins virði íslensk lög og framleiði ekki klámefni á meðan að dvöl þeirra hér stendur.

Ung vinstri græn harma jafnframt að íslensk fyrirtæki skuli taka á móti forsvarsmönnum alþjóðlega klámiðnaðarins. Nær væri að íslensk fyrirtæki sýndu samstöðu með kvenfrelsishreyfingunni og kæmu þeim skilaboðum til viðskiptavina sinna að líkami kvennasé ekki söluvara.

Ung vinstri græn undirstrika að barátta kvenna gegn kynjamisrétti, sem meðal annars endurspeglast í óútskýrðum launamun kynjanna og lágu hlutfalli kvenna í stjórnendastöðum fyrirtækja og stofnana, verður ekki slitin úr samhengi við andstöðuna gegn niðurlægingu kvenna í klámi. Ung vinstri-græn eru ekki andvíg nekt né kynlífi sem hvoru tveggja er náttúrulegir og eðlilegir hlutir, heldur mótmælum við því hvernig konur eru hlutgerðar, strípaðar niður í holdið eitt og sýndar sem leikföng karlmanna í klámmyndum. Sömuleiðis höfum við þungar áhyggjur af þeim áhrifum sem klám hefur á viðhorf karla til kvenna og kvenna til eigin kynfrelsis. Klám viðheldur og styrkir stöðu karla sem ráðandi kyns og grefur þannig undan baráttu fyrir fullu jafnrétti.

Ung vinstri-græn hvetja stjórnvöld til að bjóða klámframleiðendur ekki velkomna til landsins. Ekki er langt síðan að meðlimum Hells Angels var meinuð innganga í landið vegna tengsla þeirra við alþjóðlega glæpastarfsemi. Á annað að gilda um fulltrúa klámiðnaðrins, starfsemi sem sannanlega er ólögleg samkvæmt íslenskum lögum?

Stjórn UVG

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica