Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun um málefni innflytjenda

Stjórn Ungra vinstri-grænna hefur samþykkt eftirfarandi ályktun:

Reykjavík, 8. nóvember 2006,

Ung vinstri-græn harma málflutning Magnúsar Þórs Hafsteinssonar og samherja hans innan Frjálslynda flokksins af málefnum innflytjenda. Það er ljóst að umræða um málefni innflytjenda sem byggir á upphrópunum og hræðsluáróðri kemur engum til góða og leysir engin vandamál, jafnvel ekki vandamál sem við eigum að mati Frjálslyndra eftir að standa frammi fyrir í ókominni framtíð.

Það að líkja komu vinnandi fólks frá öðrum löndum til Íslands við innrás er ekki málefnalegt heldur beinlínis ósmekklegt. Framámönnum í stjórnmálum landsins á ekki að líðast slíkur ofstopi í garð einstakra hópa samfélagins.

Málflutningur Frjálslyndra einkennist af lýðskrumi og er fallin til þess að valda hræðslu og úlfúð í samfélaginu í garð innflytjenda sem koma hingað til lands til að vinna störf sem þarf að vinna.

Ung vinstri-græn telja að málflutningur sem þessi sé eingöngu til þess fallinn að skapa djúpstæða gjá milli innflytjenda og þeirra sem fyrir búa. Með því að nálgast ?vandamálið? á þennan hátt er því verið að búa til vandmál.

Ef talsmenn Frjálslynda flokksins halda áfram á sömu braut og sjá ekki að sér, telur stjórn Ungra vinstri-grænna það augljóst að ekki sé hægt að starfa með flokknum í stjórnarandstöðusamstarfi. Ung vinstri-græn hvetja því þingflokk Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs til að endurskoða hug sinn til samstarfs við stjórnmálaflokk með svo vafasamar áherslur í mikilvægum málaflokki.

Í sumum löndum hefur vissulega skapast eitthvað sem kallað hefur verið innflytjendavandi. Sá vandi snýr þó að mati Ungra vinstri-grænna ekki að innflytjendunum sjálfum, heldur að því hvernig tekið er á móti þeim sem og hvaða viðhorfum þeir mæta hérlendis. Ef hægt er að tala um einhvern vanda tengdan málefnum innflytjenda hér á landi er sá vandi orsakaður af afskiptaleysi ríkisstjórnarinnar í garð þeirra sem hingað flytjast.

Það skiptir mestu máli að Íslendingar taki vel á móti þeim sem setjast hér að. Því verður best komið í veg fyrir að vandamáli skapist með að styðja fólk sem hingað er komið, hjálpa fólki að aðlagast og verða fullgildir þátttakendur í samfélaginu.

Ung vinstri græn vilja:
Hækka lágmarkslaun.
Stytta vinnuvikuna.
Herða reglur um hámarksvinnutíma.
Að öllum innflytjendum séu veittar upplýsingar um íslenskt samfélag, réttindi þeirra og skyldur.
Að skylt verði að hver starfsmaður geti nálgast á sínum vinnustað ítarlegar upplýsingar um kjarasamningsbundin réttindi sín á eigin móðurmáli.
Færa umsýslu atvinnuleyfa frá launagreiðendum til launþega.
Að innflytjendur fái íslenskukennslu þeim að kostnaðarlausu.
Að börn innflytjenda fái notið kennslu í móðurmáli sínu.

Stjórn UVG

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica