Ályktun frá stjórn UVG vegna komu Bandaríska herskipsins USS Wasp
Stjórn Ungra vinstri ? grænna mótmælir harðlega komu bandaríska flugmóðurskipsins USS Wasp hingað til lands. Skip þetta er sérstaklega til þess gert að flytja hersveitir og vígatól til átaka um heiminn þar sem að Bandaríkjamenn telja að ítökum sínum sé ógnað.
Ung vinstri ? græn hafa ítrekað lýst yfir andstöðu sinni við hernaðarbrölt og beitingu hervalds í heiminum og hefur sú afstaða í engu breyst. Allt tal um að heimsókn sem þessi sé nauðsynlegur liður í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna um öryggismál, er innantómt hjal æsingamanna.
Ung vinstri ? græn ítreka þá afstöðu sína að varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna sé þarflaust og marklaust plagg. Íslendingar eiga að móta sér sjálfstæða utanríkisstefnu sem að einkennist af friðarhugsjón og hlutleysisstefnu. Ung vinstri ? græn leggja áherslu á að Ísland standi utan hernaðarbandalaga og krefjast þess að Ísland gangi úr NATÓ tafarlaust.
Stjórn Ungra vinstri ? grænna fékk á dögunum boð frá bandaríska sendiráðinu um að fara í skoðunarferð um USS Wasp næstkomandi laugardag. Stjórnin hafnar hér með því boði og frábiður sér það að morðtól sem þetta skip séu gerð að skemmtigörðum. Stjórnin leyfir sér að véfengja mjög tilgang slíkra boða og telur þau algerlega siðlaus.
Stjórn Ungra vinstri-grænna
Stjórn UVG
